Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað stjórnvöld á Taívan við því að lýsa formlega yfir sjálfstæði. „Ég leitast ekki eftir því að einhver gerist sjálfstæður,“ sagði Trump í viðtali á Fox-fréttastöðinni í gær, skömmu eftir að tveggja daga heimsókn hans til Kína lauk.
Hann hefði engan áhuga á að senda herlið fimmtán þúsund kílómetra leið og því yrðu Kínverjar og Taívanar hreinlega að slaka á. Þeir Xi Jinping hefðu rætt heilmikið um Taívan en hann hefði þvertekið fyrir að ræða hvort Bandaríkin verðu landið innrás.
Hann sagðist efins um að Xi þyrfti að berjast við Bandaríkin vegna Taívan. „Xi hefur sterkar skoðanir á Taívan og vill alls ekki að það verði sjálfstætt.“ Xi varaði Trump við að öll mistök varðandi Taívan gætu leitt af sér átök milli ríkjanna.
Lai Ching-, forseti Taívans, hefur sagt sérstaka sjálfstæðisyfirlýsingu óþarfa því landið líti nú þegar á sig sem fullvalda.
Kínversk stjórnvöld hafa kallað forsetann vandræðagemsa sem skaðað hafi friðsamleg samskipti landanna. Bandaríkin hafa lengi stutt Taívan án þess að viðurkenna sjálfstæði eyríkisins og ber lögum samkvæmt að tryggja öryggi þess.
Það hefur iðulega valdið núningi milli Bandaríkjanna og Kína, sem álítur Taívan óaðskiljanlegan hluta alþýðulýðveldisins.
Kínverjar útiloka ekki beitingu hervalds til að sölsa það undir sig. Kannanir benda til að flestir íbúar Taívan vilji halda óbreyttri stöðu, án þess hvorki að lýsa yfir sjálfstæði né sameinast Kína.