Alþjóðlegi diskósúpudagurinn var haldinn hátíðlegur á Garðatorgi í Garðabæ í dag. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á matarsóun á bragðgóðan og skemmtilegan hátt.
Um þrjátíu kíló af mat sem átti að henda fóru í súpugerðina og voru tvær súpur á boðstólum.
„Það er annars vegar rótargrænmetissúpa með smá tómat og hún var aðeins svituð með smá smjöri. Og svo er hérna í þessum er að bruggast einhver ævintýrasúpa með sveppum og fennel og appelsínu og gúmmilaði,“ segir Dóra Svavarsdóttir, diskósúpustjóri.
Dóra hvetur landsmenn til að sporna við matarsóun, kíkja reglulega í ísskápinn og skella í súpu. Uppskrift að góðri súpu sé hráefni sem á að henda, frábært fólk og slatti af gleði.
„Ekki vera hrædd, treystiði nefinu og leyfið bragðlaukunum að leiða ykkur áfram,“ bætir Dóra við.