Skotárásin átti sér stað í „óformlegri byggð“ í Cleveland en árásarmennirnir eru sagðir hafa ekið saman á staðinn í lítilli rútu. Þá fóru þeir um byggðina, skutu á íbúa og flúðu síðan í sömu bifreið.
Níu karlmenn og þrjár konur létust í árásinni. Ellefu voru úrskurðaðir látnir á vettvangi en einn lést á sjúkrahúsi.
Umrædd byggð er samansafn skúra og kofa sem komið hefur verið upp. Ástæður árásarinnar liggja ekki fyrir og enn sem komið er hefur enginn verið handtekinn.
Um 20 manns létust í tveimur skotárásum í Jóhannesarborg í desember. Samkvæmt Wasshington Post tengjast árásir af þessu tagi oft ólöglegri námastarfsemi, sem er einmitt starfrækt í Cleveland.