Netföngum og samskiptum nemenda og kennara í Háskóla Íslands í námsumsjónarkerfinu Canvas var lekið þegar ráðist var á móðurfyrirtæki þess í gær. Kennslustjóri biður nemendur að vera á varðbergi gagnvart svindlpóstum en segir skaðann ekki eins mikinn og hann hefði getað verið.
„Áhrifin eru að sjálfsögðu mikil fyrir nemanda sem situr fyrir framan tölvuna og er að læra undir próf og vefurinn fer niður. Ég geri ekki lítið úr því álagi sem það skapar fyrir nemendur. En tjónið er í lágmarki, það gæti verið verra,“ segir Margrét Sigrún Sigurðardóttir
Canvas lá niðri um tíma eftir að alvarlegt öryggisatvik varð hjá móðurfyrirtækinu Instructure seint í gærkvöld. Kerfið var komið aftur í loftið í morgun. Þetta er í annað sinn í þessari viku sem slík árás er gerð.
Áhersla á að ljúka misserinu
„Við höfum lagt áherslu á að nemendur og kennarar nýti tækifærið og taki út öll mikilvæg gögn. Það er svo sem engin ástæða til að áætla að vefurinn fari aftur niður en við viljum vera alveg örugg til að tryggja að við getum lokið misserinu með farsælum hætti,“ segir Margrét.
Háskóli Íslands vistar lokaeinkunnir og viðkvæm gögn annars staðar en í Canvas svo margir háskólar eru í verri stöðu. „Erlendir háskólar sem eru líka með nemendakerfi inni í Canvas eru í verri stöðu en við hjá Háskóla Íslands,“ segir Margrét.
Nemendur þurfa þó að vera á varðbergi gagnvart veiðitölvupóstum vegna þess að netföngum var lekið. Háskólinn verður sérstaklega vakandi fyrir tilraunum til svindls.
Margrét segir að atvikið hafi verið tilkynnt til Persónuverndar og skólinn hafi gert allt sem í hans valdi stendur. „En við höfum enga stjórn á þessu kerfi, því miður.“