Fleiri tilkynningar um netbrot rata á borð lögreglu en undanfarin ár og færri virðast falla fyrir tilraunum netsvikara. Lögregla telur þróunina jákvæða. Almenningur sé sífellt betur vakandi fyrir tilraunum til netbrota og láti vita af þeim í auknum mæli.
Í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að á fyrri helmingi ársins 2026 hafi lögreglu borist 1.745 ábendingar um tilraunir til netbrota.
Til samanburðar bárust 522 ábendingar allt árið 2025 og 153 árið 2024.
Fyrstu sex mánuði ársins var tilkynnt um 91 netbrot. Þannig er útlit fyrir að heildarfjöldi brota verði svipaður og á síðasta ári, þrátt fyrir að ábendingum hafi fjölgað margfalt.
Í tilkynningu lögreglu segir að aukin fræðsla til almennings og meiri árvekni sé líklega að skila sér með því að draga úr árangri brotamanna og koma í veg fyrir fjárhagslegt tjón.
427 milljóna tjón það sem af er ári
Það sem af er ári nemur fjárhagslegt tjón þeirra netbrota sem tilkynnt hafa verið til lögreglu 427 milljónum króna. Til samanburðar nam tilkynnt tjón 586 milljónum króna allt árið 2025 og 191 milljón króna árið 2024.
Stærstur hluti þeirra tilkynninga sem berast til lögreglu vegna tilrauna til netbrota snýr að fjarskiptasvikum og tölvupóstveiðum. Þau brot sem valda mestu fjárhagslegu tjóni eru hins vegar svik á borð við fjárfestingarsvik, ástarsvik og fölsk fyrirmæli.
Fólk er hvatt til að vera á varðbergi og tilkynna þær tilraunir sem það verður fyrir. Telji fólk sig hafa orðið fyrir netbroti og fjárhagstjóni er því bent á að hafa samband við sinn viðskiptabanka og tilkynna atvikið til lögreglu.