Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti rennur út um mánaðamótin. Ríkisstjórnin hefur rætt hvort rétt sé að framlengja lækkunina en ákvörðun liggur ekki fyrir.
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir það velta á þróun olíuverðs í september hvort lækkunin verði framlengd. „En það mun bíða, að minnsta kosti fram í september vegna þess að það krefst aðkomu Alþingis.“
Skatturinn var lækkaður úr 24% í 11% í byrjun maí.
Til að framlengja aðgerðina þarf samþykki Alþingis. Það kemur ekki saman fyrr en 8. september og því ljóst að framlenging, ef til hennar kemur, verður ekki samþykkt fyrr en um miðjan september hið fyrsta.
Það var raunar eitt af því sem stjórnarandstaðan benti á við þinglega meðferð málsins í haust. Að vissara væri að láta lækkunina gilda lengra inn í haustið ef svo færi að eldsneytisverð yrði enn í hæstu hæðum á meðan þingið væri í sumarfríi. Breytingartillögur minnihlutans þess efnis voru felldar.
Inntur eftir hvort ríkisstjórnin hefði átt að hugsa fyrir því bendir Daði Már á að allir hafi búist við að ástandið væri orðið betra í haust. „Þannig að ég held að vísu að það sé kannski ekki alveg málefnalegt. Stjórnarandstaðan – frekar en við – vissi ekkert hvernig olíuverð myndi þróast,“ segir hann.