Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann í Glerárdal og flutti á Sjúkrahúsið á Akureyri í kvöld. Börkur Árnason, varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, staðfestir þetta.
Lögreglu barst tilkynning um slasaðan mann í Glerárdal um 18:30 í kvöld. Málið var sett í næsthæsta forgangsstig, F2, sökum þess að vettvangurinn var utandyra. Börkur segir það ávallt gert þegar slasað fólk liggi utandyra sökum hættu á ofkælingu vegna þess hve köld jörðin er.
Ásamt lögreglu voru sjúkraflutningamenn og allar björgunarsveitir í Eyjafirði kallaðar út. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á hæsta forgangi um korteri eftir að lögreglu barst tilkynning um málið.
Þyrlan kom í Glerárdal um klukkan 20 í kvöld. Hún stoppaði þar stutt, sótti manninn og flutti hann á Sjúkrahúsið á Akureyri. Börkur staðfestir að maðurinn hafi verið fluttur á bráðamóttökuna. Hann veit þó ekki hvernig honum heilsast.