Áfrýjunardómstóll þyngdi í dag dóm yfir Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseta Suður-Kóreu. Hann var sakfelldur í ársbyrjun fyrir að hindra framgang réttvísinnar í tengslum við tilraun til valdaráns 2024. Hann hlaut upphaflega fimm ára fangelsisdóm en refsingin var þyngd í sjö ára fangelsi eftir áfrýjun.
Yoon hafði þegar verið sakfelldur fyrir tilraun til valdaráns og fékk fyrir það lífstíðardóm í fangelsi. Hann sætir líka ákæru fyrir að veita óvinum Suður-Kóreu liðsinni með því að senda dróna hersins til Norður-Kóreu snemma árs 2024. Hann neitar sök.