Þrjú ungmenni létust í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti í nótt. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning um slysið hafi borist klukkan 00:19. Ungmennin, piltur og tvær stúlkur, voru öll í bifreið sem hafnaði utan vegar. Henni var ekið suður Krýsuvíkurveg, nærri Bláfjallavegi, þegar slysið varð.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.
Þrjú ungmenni létust í slysinu á Krýsuvíkurvegi