Þrjú ungmenni látin eftir slys á Krýsuvíkurvegi
Piltur og tvær stúlkur létust í slysi í nótt.
Þrjú ungmenni létust í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti í nótt, en tilkynning um slysið barst kl. 0.19. Ungmennin, piltur og tvær stúlkur, voru öll í bifreið sem hafnaði utan vegar. Henni var ekið suður Krýsuvíkurveg, nærri Bláfjallavegi, þegar slysið varð.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.