Þrír létust þegar þyrla hrapaði til jarðar yfir Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Þyrlan var í eigu fréttastöðvarinnar NBC og voru myndatökumenn um borð að taka myndir af vettvangi bílslyss sem varð í gærkvöld í Chatsworth-hverfi norðvestur af miðbæ borgarinnar. Þrír létust í slysinu þegar jeppi ók á strætó. Nokkrir aðrir slösuðust.
Fréttamenn sem voru á slysstað segja að þeir hafi séð þyrluna hrapa til jarðar og þá heyrt mikinn hvell. Reykur tók þá að stíga til himins. Á loftmyndum sést svo brak þyrlunnar alelda innan um flutningagáma, með illa skemmt stél.
Tvennt var um borð í þyrlunni þegar hún hrapaði og svo virðist sem sá þriðji hafi verið á gangi á jörðu niðri og orðið fyrir henni.
Svæðissjónvarpsstöðin NBC4, sem sýndi beint innan úr þyrlunni, greindi frá því í útsendingu sinni að sambandið við þyrluna hefði rofnað. Nokkru síðar las fréttaþulurinn Colleen Williams þær fregnir að þyrlan hefði farist.
„Við vissum að þetta hefði verið fréttaþyrla. Við vissum að við hefðum misst samband við teymi okkar á staðnum og nú höfum við fengið staðfestingu þess efnis.“
Alvanalegt er að nokkrar þyrlur séu á sveimi yfir Los Angeles hverju sinni, oftar en ekki til þess að fylgjast með umferðarþunga í stórborginni eða segja fréttir af umferðarslysum.
Í frétt NBC um málið segir að Eliana Moreno fréttamaður og George Marciniw hafi verið um borð í þyrlunni. Hún sé sjónvarpsáhorfendum í Los Angeles að góðu kunn og sé einnig vel þekktur fréttamaður spænskumælandi systurstöðvar NBC4, Telemundo 52. Þau hafa flogið saman í þyrlu síðan 2023.
Samgöngustofnun þar vestra hefur slysið til rannsóknar.