Einn hlaut stungusár og annar var með sár á hendi eftir að til áfloga kom við Valhallarbraut í Reykjanesbæ á þriðja tímanum í nótt. Þrír voru handteknir og hyggst lögregla fara fram á gæsluvarðhald síðar í dag.
Lögreglu var tilkynnt um slagsmál utandyra við Valhallarbraut um 20 mínútur í þrjú í nótt. Þar var fjöldi fólks saman kominn þegar lögreglu bar að. Einn maður var þá með stungusár og annar með sár á hendi.
Sá sem var stunginn var fluttur á spítala. Hann er enn þar en er ekki í lífshættu.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út til aðstoðar lögreglunni á Suðurnesjum. Hún hjálpaði til við leit að þeim sem eru grunaðir um árásina.
Þrír voru handteknir og bíða þeir þess að vera yfirheyrðir. Lögreglan á Suðurnesjum greinir frá því á heimasíðu sinni að hún ætli að fara fram á gæsluvarðhald síðar í dag. Það er á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Rannsóknin er á frumstigi.