Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að allir þrír hafi verið handteknir á Þingvöllum og þeir færðir á lögreglustöð til skýrslutöku. Unnið sé að brottvísun þeirra.
Í lok júlí voru sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað og farið fram á brottvísun yfir þeim. Þar voru óeinkennisklæddir lögreglumenn að verki. Undanfarnar vikur hafa lögreglumenn heimsótt vinsæla ferðamannastaði í því skyni að hafa hendur í hári vasaþjófa.
„Þetta er sem við erum búin að vera að vinna í síðustu vikur og mánuði,“ segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu. Hann getur ekki fullyrt að óeinkennisklæddir lögreglumenn hafi handtekið ferðamennina á Þingvöllum.
Lögreglan telur vasaþjófnaðinn vera hluta af skipulagðri glæpastarfsemi. Í langflestum tilfellum sé farið fram á brottvísun.
„Þetta er þrælskipulagt,“ segir Þorsteinn.