Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum í dag vegna alvarlegs umferðarslyss í Reykholti í Borgarfirði.
Var þyrlan kölluð út á mesta forgangi og flutti þrjá slasaða á Landspítalann í Fossvogi. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Klippa þurfti tvo úr ökutæki
Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir í samtali við mbl.is að um sé að ræða alvarlegan árekstur tveggja bifreiða og að mikill viðbúnaður hafi verið á slysstað. Þá þurfti að klippa tvo út úr einni bifreið.