Forystumenn ríkisins og aðila vinnumarkaðarins ætla að hefja þríhliða samtal með það að markmiði að forsendur kjarasamninga haldi í haust.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ætla að leita leiða til að hemja verðbólgu og láta greina stöðuna.
Búið er að skipa stýrihóp með fulltrúum forsætisráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Einnig er búið að skipa þrjá undirhópa og eiga BSRB, BHM, KÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga fulltrúa í tveimur þeirra.
Stýrihópurinn á meðal annars að meta áhrif stríðsins við Persaflóa á verðlagsþróun hér.
Einn undirhópurinn á að greina áhrif vaxta, verðbólgu og verðtryggingar á mismunandi samfélagshópa. Annar á að greina valkosti til að draga úr sjálfvirkum verðlagsbreytingum. Sá þriðji á að greina leiðir til að styrkja launatölfræði.
Vinna hópanna er að hefjast, samkvæmt tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, og á að ljúka í september.