Hæstiréttur hefur dæmt Þorstein Hermann Þorbjörnsson í 14 ára fangelsi fyrir að svipta sambýliskonu sínu lífi á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl árið 2024.
Miklir áverkar voru á konunni sem hafði þolað grimmilegt ofbeldi af hálfu Þorsteins. Í Héraðsdómi Norðurlands eystra var hann hins vegar ekki sakfelldur fyrir manndráp heldur fyrir ofbeldi í nánu sambandi sem leiddi til dauða. Var hann dæmdur í 12 ára fangelsi. Í Landsrétti var hann hins vegar sakfelldur fyrir manndráp af ásetningi og dæmdur í 16 ára fangelsi.
Hæstiréttur hefur núna mildað þann dóm um tvö ár. Hæstiréttur dregur þá ályktun af gögnum málsins að Þorsteinn hafi beitt konuna grófu ofbeldi um langan tíma en engu að síður verði ekki dregnar haldbærar ályktanir um sérstakan ásetning hans til manndráps umrædda nótt, þegar hann banaði konunni. Orðrétt segir í niðurstöðunni:
„Þegar allt framangreint er metið heildstætt og að virtri meginreglu 108. gr. laga nr. 88/2008 er varhugavert að telja fram komna fulla sönnun þess að ákærði hafi á verknaðarstundu haft ásetning til að bana brotaþola. Verður þess í stað að miða við að um hafi verið að ræða stórfellt gáleysi ákærða til afleiðinga verknaðarins sem lyktaði með andláti brotaþola. Samkvæmt þessu verður háttsemi ákærða heimfærð til 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga sem stórfelld líkamsárás sem leiddi til bana en málið var einnig flutt fyrir Hæstarétti með hliðsjón af því ákvæði, sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður ákærði einnig sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi samkvæmt 1., sbr. 2. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga.“
Niðurstaðan er sú að Hæstiréttur sakfellir ákærða fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til bana auk stórfellds ofbeldisbrots í nánu sambandi og dæmdi hann í 14 ára fangelsi.
Dóminn má lesa hér.