Rjúfa þarf vítahring á vinnumarkaði á Íslandi og til þess þarf öguð vinnubrögð, að mati formanns Samtaka atvinnulífsins. Halda þurfi aftur af verðhækkunum eins og unnt er.
SS frestar verðhækkunum
VR, LÍV og fagfélögin sendu verðmótandi fyrirtækjum bréf og óskuðu eftir svari um hvað þau ætluðu að gera svo kjarasamningar héldu sínu gildi. Þetta voru fyrirtæki á borð við Arion banka, Dranga, Haga, Innnes og Kaupfélag Skagfirðinga.
SS svaraði kallinu og tilkynnti í morgun að það ætlaði að fresta 3-5% verðhækkunum sem áttu að taka gildi á næstu dögum fram í janúar.
Nokkrar vörur í smásölu sem áttu að hækka um 5% hækka um 3% í staðinn. Áætlaður kostnaður fyrirtækisins er allt að 110 milljónir króna.
Samtök atvinnulífsins sendu einnig frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem segir að þau vilji leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn verðbólgu. Það gerist með því að fyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum eins og unnt er.
Fyrirtækin tilbúin að leggja sitt af mörkum
Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir SA vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólguna og hvetur fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum. Ríki og sveitarfélög þurfi að ganga fram með góðu fordæmi og stilla hækkunum gjaldskráa í hóf.
„Fyrirtækin eru tilbúin til að leggja sitt af mörkum í þessari baráttu, alveg klárlega, og svo sjáum við að SS hefur gengið fram með góðu fordæmi.“
Samtökin segja þörf á samstilltu átaki fyrirtækja, ríkis og sveitarfélaga.
„ Það þarf að rjúfa þennan vítahring sem er hér. Kerfið er í raun allt fast í ákveðnum hjólförum. Hér er framleidd verðbólga með launaskriði og höfrungahlaupum. Þar er tími til kominn nú að setja fókus á verðmætasköpun og öguð vinnubrögð vegna launaþróunar.“
Gengur ekki að ákveðnir hópar stigi út fyrir launahækkanir
Grundvallarbreytingar þurfi á vinnumarkaðsmódelinu. Ekki sé hægt að almenni markaðurinn komist að niðurstöðu um launahækkun en svo stigi ákveðnir hópar út fyrir það.
„Það getur bara ekki gengið til lengdar að einstaka hópar stígi út fyrir merkið sem verið er að reyna að búa til til almennrar launaþróunar og þannig hefst hið svokallaða höfrungahlaup.“
Þarna vísar Jón Ólafur til dæmis til lækna og kennara sem fengu mun meiri launahækkun en á almennum markaði. „Það hefur sett okkur í vanda og skapað þrýsting alls staðar í kerfinu.“
Jón Ólafur segir samtökin eiga í samtali við verkalýðshreyfinguna um hvað sé hægt að gera til að bregðast við forsendubresti kjarasamninganna. Þeir gætu losnað 8. október.
„Við erum búin að eiga í samtölum við þessi aðildarsamtök ASÍ um hvað sé hægt að gera til að bregðast við þessum forsendubresti. Auðvitað höfum við skipst á skoðunum um hvað geti talist skynsamlegt að gera og við erum svo sem bara að vinna í þessum samtölum um þessar mundir.“