Formenn stjórnmálaflokkanna sem eiga fulltrúa á Alþingi tókust á um þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið í Silfrinu í kvöld.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina hafa valið tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar með hagsmuni ríkisstjórnarinnar, ekki þjóðarinnar, að leiðarljósi. „Þjóðin er gjörsamlega klofin í herðar niður. Það er orðið þannig að hér geta fjölskyldur varla hist,“ segir hún.
„Það verður af þessari þjóðaratkvæðagreiðslu,“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Hún segir að Ísland sé sterkt lýðræðissamfélag þar sem hægt er að takast á um stór mál án þess að sundrast. Hún vonast til að sama hvernig fer 29. ágúst komi þjóðin út sameinuð.
Hart var sótt að Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, um hvort hún hygðist segja „já“ eða „nei“ í ágúst. Hún vildi ekki tjá sig um það. Hún segist vera hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu og sagði að endingu að hún myndi fylgja stefnu flokks síns í málinu.
Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar, sagði að hún virti ákvörðun ríkisstjórnarinnar að ráðast í atkvæðagreiðsluna en gagnrýndi að hún væri sett á oddinn yfir önnur mál.
Þráspurði hvað það þýddi að virða vilja þjóðarinnar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, þráspurði hvað það þýddi að virða vilja þjóðarinnar í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, benti honum á að kynna sér málið, til dæmis með upplýsingabæklingi frá landskjörstjórn.
„Hvað þýðir það að segja já? Það þýðir að opna á tækifæri, sjá raunverulega hvað samningar eru,“ sagði hún og gagnrýndi Sigmund fyrir að tala niður hagsmuni landsins.
Sigmundur ásakaði hana um lýðskrum á móti. „Hvernig virðir maður niðurstöðuna ef hún er „já“? Hvað þarf maður að gera? Nú væri gott fyrir næstu ríkisstjórn að vita það.“
Þorgerður Katrín sagði þá að ef þjóðin veldi „já“ þá vonaðist hún til þess að ýmsir hópar sem væru á móti ESB, til dæmis bændur og sjávarútvegurinn, tækju þátt í samningaviðræðunum.