Til stendur að ljúka störfum á morgun og þrjú þingmál úr ranni stjórnarandstöðunnar verða jafnframt tekin til umræðu.
Þá fjöllum við um stöðuna í stríðinu í Íran en viljayfirlýsing um frið á svæðinu var undirrituð í gærkvöldi.
Einnig fjöllum við um húsnæðismarkaðinn hér á landi og segjum frá ráðstefnu um upplýsingaóreiðu sem fram fer í dag.
Í sportinu verður svo hitað upp fyrir stóru stundina þegar Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur leik á opna bandaríska meistaramótinu fyrstur íslenskra karla.