Það er „fáranlegt og fráleitt“ að halda því fram að Donald Trump Bandaríkjaforseti sé reglulega að dotta á ríkisstjórnarfundum að sögn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Er Rubio sat fyrir svörum á þingfundi voru honum sýnd nokkur myndskeið af Trump þar sem hann sést með lokuð augun á ríkisstjórnarfundum.
„Ég veit ekki einu sinni hvernig ég á að bregðast við þessu, annað en að segja ykkur að þetta er fáránlegt og fráleitt,“ sagði Rubio.
Mun virkari en margt yngra fólk
„Þið eruð kannski ekki hrifin af stefnu hans, þið eruð kannski ekki hrifin af ákvörðunum sem hann hefur tekið. En ég fullvissa ykkur um að þetta er ekki forseti sem sefur eða er með skerta vitræna getu á nokkurn hátt,“ bætti Rubio við.
„Og í raun er hann ótrúlega virkur, mun virkari í mörgum tilfellum en mun yngra fólk í kringum hann. Þetta eru staðreyndir.“
Hann sagði Trump vinna nánast allan sólarhringinn streitulaust.