Mörg hundruð minkar, að minnsta kosti, sluppu úr loðdýrabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal eftir innbrot og skemmdarverk.
Um tólf þúsund dýr voru í búinu. Þegar að var komið á áttunda tímanum í morgun höfðu skemmdir verið unnar á húsnæðinu og dýrunum hleypt úr búrum sínum. Sum komust út fyrir öryggisgirðingu sem er umhverfis það.
Stofnaður var aðgerðahópur með aðsetur á Gljúfrasteini og í honum eru meðal annars fulltrúar lögreglu, Matvælastofnunar og Landsbjargar.
7.000 búr opnuð
Ásgeir Pétursson, eigandi búsins, segir afleiðingar verknaðarins verða gríðarlegar strax á næstu dögum. Um 7 þúsund búr hafi verið opnuð og telur Ásgeir fleiri einstaklinga hafa komið að verknaðinum.
Mig grunar að það séu samtök í Evrópu, dýraverndunarsamtök. Þetta er afleiðing af dýravernduninni þeirra.
Hann segir mikla vinnu fram undan við að safna dýrunum í búr. Það hafi einnig afleiðingar fyrir dýrin því erfitt sé að þekkja dýrin í sundur og minkar sem séu óvanir að vera saman í búri fari gjarnan að slást.
Þannig að þetta er ekkert létt. Þeir eru búnir að skapa mér gríðarlega vinnu og okkar fólki.
„Það er enginn séns að þeir hafi allir náðst“
Lögregla flaug dróna yfir dalinn til að auðvelda leitina að dýrunum. Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri segir lögreglu rannsaka málið sem innbrot, húsbrot og möguleg eignaspjöll. Honum þyki einnig líklegt að kæra sem snúi að dýravelferð verði lögð fram.
Minkaskyttur voru kallaðar til og gengu þær um í nágrenninu og veiddu og skutu minka. Alls komu um fimmtíu manns að aðgerðunum í dag. Pétur Benedikt Rafnsson, minkaskytta, brá sér úr sumarfríi til að aðstoða. Hann segir minkinn án efa hafa dreift sér á svæðinu. Það muni að hans mati aldrei takast að veiða þá alla.
Það mun aldrei takast. Hann er mjög lævís minkurinn og hann er mögnuð skepna og kemur sér fyrir og kemst óséður auðveldlega. Það er enginn séns að þeir hafi allir náðst.
„Það má kalla þetta það sem fólk vill, en þetta eru algjörlega ólíðandi skemmdarverk,“ segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Hann hvetur íbúa til að láta vita ef þeir sjái mink svo hægt sé að bregðast við eins fljótt og auðið er.