Þetta segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands í hugleiðingum sínum. Stöku þokubakkar verði við sjóinn á Norður- og Austurlandi og sömuleiðis sums staðar þokuloft við vesturströndina.Á morgun verður hann norðlægari en af svipuðum styrk og svalara veður. Skýjað á norðurhelmingi landsins, sums staðar smávægis væta og hiti á bilinu 3 til 8 stig. Hins vegar verður bjartara sunnantil á landinu með hita að 13 stigum.Á laugardag, sunnudag og fyrripart næstu viku virðast spár nokkuð sammála um að áttin verði suðlæg með mildu veðri og vætu sem einkum verður bundin við sunnan- og vestanvert landið.
Norðan og norðaustan 3-10 m/s. Skýjað og stöku skúrir, en þurrt og bjart sunnan heiða. Hiti 4 til 13 stig að deginum, hlýjast á Suðurlandi.
Á laugardag:
Suðlæg átt 5-13. Skýjað og dálítil súld sunnan- og vestantil, en bjart með köflum á norðaustanverðu landinu. Hiti 6 til 12 stig.
Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Sunnanátt og rigning með köflum, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 8 til 13 stig.
Á miðvikudag:
Suðvestanátt og skúrir, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Kólnar heldur í veðri.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:Norðan og norðaustan 3-10 m/s. Skýjað og stöku skúrir, en þurrt og bjart sunnan heiða. Hiti 4 til 13 stig að deginum, hlýjast á Suðurlandi.