Forseti Alþýðusambands Íslands segir verkalýðshreyfinguna hafa átt í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld í allt sumar til að reyna að koma í veg fyrir að segja þurfi kjarasamningum upp í haust. Meira þurfi til þó til ef það á að ganga eftir.
„Það hefur fram að þessu ekkert komið, þannig að það þarf meira til en ekkert. Það liggur alveg fyrir,“ segir Finnbjörn Hermannsson.
Formenn sex verkalýðsfélaga sögðu í dag að ef stjórnvöld og atvinnurekendur réðust ekki til aðgerða gegn erfiðu efnahagsumhverfi yrði núgildandi kjarasamningum sagt upp. Hægt er að segja samningunum upp ef verðbólga mælist yfir 4,7% í lok mánaðar, sem allar líkur eru á að gerist.
„Við höfum verið í viðræðum. Vonandi höldum við þeim áfram og reynum að komast að einhverju samkomulagi þannig að við þurfum ekki að segja upp kjarasamningum. Gangi það ekki eftir þá blasir við að það þurfi að segja upp kjarasamningum því launafólk í landinu getur ekki setið eitt uppi með ábyrgðina af því hvort að verðbólga sé há á Íslandi eða ekki,“ segir Finnbjörn.
Hann kveðst vongóður að viðræðurnar beri árangur. „Maður er ekki í svona viðræðum öðruvísi en að standa í þeirri trú að allir ætli að gera sitt besta og að við náum einhverri niðurstöðu sem er ásættanleg fyrir alla aðila.“