„Það er erfitt að lýsa þessari reynslu án þess að hafa upplifað hana, það er rosalega erfitt að missa heilsuna allt í einu.“
Gunnar Axel Gunnarsson lét af störfum sem bæjarstjóri í Vogum fyrir um einu og hálfu ári vegna veikinda. Gunnar var greindur með langvinnan Covid-sjúkdóm. Hann segir það mikið áfall að missa starfsgetu og eiga í erfiðleikum með daglegt líf.
„Þetta er auðvitað mjög fjölmennur hópur á Íslandi sem er að kljást við svokölluð langvinn einkenni, Covid-19 og ME-taugasjúkdóm og fleiri skylda sjúkdóma sem búa í raun við algjöran skort á heilbrigðisþjónustu.“
Þótt nákvæmur fjöldi þeirra sem glími við langvinn einkenni Covid og skyldra sjúkdóma segir Gunnar allt benda til þess að það sé nokkuð fjölmennur hópur.
Greiningum fjölgað seinustu ár
Mikil aukning hefur orðið í greiningum á þreytuheilkenni eftir veirusýkingu, en alls hafa 763 greinst á árunum 2020–2025 samanborið við aðeins 241 einstakling á fimmtán ára tímabili áður. Greiningar hafa því rúmlega þrefaldast á síðustu sex árum.
Gunnar kallar eftir auknum stuðningi við sjúklingahópinn, þótt endurhæfing sé engin töfralausn geti hún haft gríðarlega mikil og dýrmæt áhrif á sjúklingahópinn.
„Ég er auðvitað að vonast til þess að stjórnvöld bregðist nú loksins við þessari áskorun og beiðni þeirra sjúklingahópa sem þetta á við og verði við óskum þeirra og tryggi þessum hópi viðeigandi stuðnings- og endurhæfingarþjónustu.“