Í dag er liðið ár síðan níunda eldgosið á Sundhnúksgígaröð hófst. Það stóð í þrjár vikur. Síðan þá hefur líf færst í Grindavíkurbæ, um 900 eru með lögheimili í bæjarfélaginu og grunnskólinn hefur göngu sína í haust eftir þriggja ára hlé. Íbúar segja mikið um að vera í bænum.
Líf færst í bæinn á ný en fólk í biðstöðu
„Þegar ég byrjaði að vinna hérna aftur eftir gos, eftir rýmingu, þá var ég búin að undirbúa mig undir að hér yrðu bara túristar, að þetta yrði ekki eins og áður. Það kom mér skemmtilega á óvart að það er mun meira af Grindvíkingum og íslenskum ferðamönnum sem koma heldur en túristum,“ segir Hulda Karen Bessadóttir, starfsmaður í Víkurvali.
Vignir Kristinsson, eigandi Kristinsson Handmade, segir atvinnulíf í Grindavík í eins miklum blóma og mögulegt sé miðað við núverandi aðstæður. Fólk sé hins vegar í biðstöðu.
„Það er ennþá landris þó að það hafi hægt rosalega á því. Það er mikil kvikusöfnun og á meðan það er þá verður ekki gefið grænt ljós. Við erum búin að bíða í ár og ég held að við verðum bara að halda áfram að bíða þar til það kemur grænt ljós frá jarðfræðingunum okkar,“ segir Vignir.
„Ég held að það eigi eftir að vera heitasti staðurinn þegar græna ljósið kemur en ég held að þetta verði ekki neitt spretthlaup, þetta verður langhlaup.“
Pétur G. Markan bæjarstjóri segir unnið náið með stjórnvöldum að nýju áhættumati fyrir bæinn.
„Nýtt áhættumat getur haft það í för með sér að hér geti hafist uppbygging af krafti og mannlíf, búseta, þjónusta, skólahald og allt það sem fylgir myndarlegum samfélögum – það sem fylgdi Grindavík hér áður sem var eitt af myndarlegustu bæjarfélögum landsins. Þetta er það sem við vinnum markvisst að og það eru svona vendingar í þessum málum núna sem við erum mjög stórhuga með.“
Hann segir mikilvægt að vinna úr áföllunum á uppbyggilegan hátt.
„Það er náttúrulega margt sem Grindvíkingar eiga eftir að vinna úr, þetta er áfall en galdurinn er að taka áfallið og reyna að vinna með þetta sem við köllum stundum tilganginn, finna áfallinu einhvern tilgang. Og tilgangurinn er að byggja bæinn til framtíðar,“ segir Pétur.