Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir Grænlendinga vera skýra í þeirri afstöðu sinni að þeir vilji áfram tilheyra danska ríkinu.
Þetta segir Kristrún í samtali við mbl.is frá Ankara, höfuðborg Tyrklands, þar sem leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fer fram.
Augu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta virðast enn beinast að Grænlandi en á leiðtogafundinum ítrekaði hann þá afstöðu sína að Grænland ætti að vera undir stjórn Bandaríkjanna, ekki Danmerkur.
Vilja ráða eigin örlögum
Kristrún segir afstöðu Íslands gagnvart málefnum Grænlands ekki vera flókna.
„Það er alveg skýrt hvernig sambandi Grænlands og Danmerkur er háttað. Það eru Grænlendingar sem ráða sínum örlögum og sinni framtíð.“
Oft og tíðum hafa sprottið upp umræður í Grænlandi um það hvort hagsmunum þeirra yrði betur borgið sem sjálfstæðri þjóð í stað þess að heyra undir Dani. Í seinustu þingkosningum þar í landi studdu allir flokkarnir sjálfstæði frá Dönum.
„Vissulega hafa oft verið umræður um framtíð þessa ríkjabandalags en það er á milli Grænlands og Danmerkur. Grænland hefur verið alveg skýrt í því að þau vilji tilheyra danska ríkinu, eða þessu konungssambandi. Þau vilja vera sjálfstæð og ráða eigin örlögum,“ segir Kristrún.
„Þau hafa ekki áhuga á því að vera keypt eða seld né að verða hluti af Bandaríkjunum.“