Í úrskurði nefndar umhverfis- og auðlindamála er litið svo á að Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hafi ekki mátt gefa út starfsleyfi til heitloftsþurrkunar Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit. Þetta var endurnýjun starfsleyfis og íbúar á Laugum kærðu veitinguna.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra starfar eftir samstarfssamningi sveitarfélaga frá 2023. Samningurinn var samþykktur í öllum sveitarfélögunum og hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Að mati fulltrúa Heilbrigðiseftirlitsins er það nóg en úrskurðarnefndin er ósammála. Nefndin telur að HNE hefði einnig átt að samþykkja samninginn og auglýsa hann í B-deild Stjórnartíðinda. Hann sé því ekki gildur.
„Ég held að það hafi verið skilningur manna á lögunum að það hafi bara verið þessar sérstöku samþykktir sem þyrfti að birta í Stjórnartíðindum en núna kemur þessi úrskurður og er gerð krafa að mati nefndarinnar að þetta sé birt í B-deildinni,“ segir Leifur Þorkelsson, fulltrúi HNE.
Kemur verulega á óvart
Leyfin sem HNE gefur út eru tvenns konar. Annars vegar þau sem ekki er hægt að gera athugasemdir við og hins vegar þau sem má gera athugasemdir við, eins og mengandi starfsemi og annað slíkt.
Úrskurður nefndarinnar kemur Leifi verulega á óvart. Síðan samstarfssamningurinn tók gildi árið 2023 hefur HNE gefið út þrjú starfsleyfi sem gerðar voru athugasemd við. Þetta á Laugum og svo tvö fyrri leyfi. Í öllum tilvikum hafi verið kært til úrskurðarnefndarinnar og hún hafi þegar fjallað um hin tvö, án þess að komast að þeirri niðurstöðu að HNE hafi farið út fyrir valdsvið sitt og að samstarfssamningurinn sé ekki gildur. Þetta komi því verulega á óvart.
„Í hvorugt skiptið gerði nefndin athugasemd við þennan samstarfssamning. Þetta er mjög sérstakt allt saman,“ segir Leifur.
Heitloftsþurrkunin á Laugum
Íbúar á Laugum kærðu útgáfu starfsleyfis til heitloftsþurrkunar á fiski. Þeir segja lyktarmengun af starfseminni og eru verulega ósáttir við útgáfu og endurnýjun starfsleyfis, sér í lagi í ljósi allra þeirra athugasemda sem hafa borist í gegnum tíðina.
Leyfið var veitt Samherja með því skilyrði að þeir myndu endurbæta mengunarvarnir sem hafi verið gert, eins og fram kemur í málsvörn í kærumálinu:
„Leyfishafi bendir á að miklar framfarir hafi orðið í mengunarvörnum og gerðar séu strangari kröfur til fyrirtækja um mengunarvarnir en á níunda áratugnum. Vissulega fylgi lykt, hávaði og frárennslismengun starfseminni ef engum mengunarvörnum sé beitt og hafi það átt við um fjölda annarra fyrirtækja á árum áður. Í samræmi við auknar kröfur hafi verið settur upp hreinsunarbúnaður fyrir frárennsli og útblástur hjá rekstraraðila og hljóðvarnir bættar.“