Lögregla stöðvaði allmarga ökumenn í nótt, að því er kemur fram í dagbók lögreglu, sjö vegna ölvunaraksturs.
Þá voru nokkrir kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem mældist á mestum hraða ók á 200 kílómetra hraða á klukkustund á götu þar sem hámarkshraði er 80.
Tilkynnt var um innbrot í miðborginni og um tónlistarhávaða víða.