Hótel- og baðlónsframkvæmdir Bláa lónsins í Þjórsárdal eru til marks um kvótasetningu náttúrunnar og sýna skort á stefnu stjórnvalda í umhverfisvernd, segir framkvæmdastjóri Landverndar.
Samtökin hafa frá upphafi gert ýmsar athugasemdir við tuttugu milljarða uppbyggingu Bláa lónsins í Þjórsárdal sem reisir þar hótel og baðlón, ekki síst við að hluti hennar sé á friðuðum svæðum.
Framkvæmdir eru vel á veg komnar, fyrirtækið skrifaði undir sérleyfis- og lóðaleigusamninga við ríkið í gær og starfsemi hefst á næsta ári.
Bláa lónið er ekki stóra málið
Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir áhyggjur samtakanna hafa raungerst. „Stóra málið í þessu er ekki fyrirtækið Bláa lónið heldur prinsipp stjórnvalda og stefna stjórnvalda. Eða hugsanlega skortur á henni,“ segir Björg Eva.
Hún segir að á meðan ekkert auðlindaákvæði sé í stjórnarskránni sé ekkert því til fyrirstöðu að þetta endurtaki sig.
„Það er hægt að taka snögga ákvörðun um að afhenda stór svæði, þjóðlendur, friðuð svæði einu fyrirtæki.“
Friðun hljóti að þýða að vernda eigi svæði
Var það ykkar skilningur að það yrði erfiðara að fá leyfi til framkvæmda, þar sem þetta er friðuð þjóðlenda? „Ég held að það hljóti að vera almennur skilningur fólks að friðun þýði það sem felst í orðinu. Að þarna eigi að vernda og verja svæði. Þess vegna séu þau friðuð.“
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, sagði í sjónvarpsfréttum í gær að fáir hefðu jafn mikinn hag af að vernda náttúruna og fyrirtækið. Allt kapp yrði lagt á að vernda náttúruna á framkvæmdasvæðinu í Þjórsárdal og vottanir á hönnuninni á byggingum væru þær bestu sem veittar hefðu verið.
Björg Eva segist ekki efast um að fyrirtækið geri sitt besta. „En þarna verður manngert umhverfi, þessar náttúruperlur breytast. Ég held að þetta Þjórsárdalsmál hljóti að verða til þess, þegar fólk áttar sig á hvað þetta er rosalega stórt, að það vakni spurningar um hvernig á að fara með þjóðlendurnar og friðuð svæði,“ segir Björg Eva.
Við kvótasettum auðlindir hafsins. Núna sýnist mér að það sé komið að kvótasetningu náttúrunnar og landsins.