Flugvélin fór í loftið frá Ostrava í Tékklandi klukkan 15:34 að íslenskum tíma. Kári áætlar að vera yfir Reykjavík milli klukkan 19:15 og 19:30. Hann gerir ráð fyrir að aðflugið verði úr suðri til norðurs, yfir braut 01, og býst við að fara niður í 500 feta hæð yfir flugbrautinni.
Flugvélin var smíðuð árið 2015 og var áður hjá Wizz Air. Sætaskipan hefur verið breytt og vélin fengið íslenska skráningu, TF-IAT, að sögn Guðna Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair. 154 sæti eru í vélinni, þar af 16 á Saga premium. Ekki hafa verið settir skjáir í sætisbök en boðið verður upp á afþreyingarkerfi í streymi þar sem farþegar nota eigið tæki.
Icelandair ákvað að leigja þessa vél vegna seinkunar á afhendingu nýrrar Airbus A321-þotu, sem átti að vera sú sjöunda í nýja Airbus-flotanum en kemur ekki fyrr en í haust. Tafir urðu á afhendingu vélarinnar, sem átti að hlaupa í skarðið, og því þurfti félagið að taka inn aðra flugvél í blautleigu í nokkra daga í byrjun mánaðar frá flugfélaginu Heston Airlines í Litháen. Þeirri vél verður núna skilað.