Sýn hættir framleiðslu á sjónvarpsfréttum og uppsagnir í vændum
Sýn hættir framleiðslu á sjónvarpsfréttum, sem þeir hafa gert í 40 ár. Starfsfólki verður sagt upp.
Fjölmiðlafyrirtækið Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu á sjónvarpsfréttum frá og með morgundeginum, 1. september, að því er fram kemur á fréttavef fyrirtækisins, Vísi. Kemur þessi ákvörðun í kjölfar þess að upp úr slitnaði í samningaviðræðum Sýnar við fjölmiðlafyrirtækið Símann.
Starfsfólki verður sagt upp að því er kemur fram í tilkynningu. Eins kemur fram að hætt verði við framleiðslu og útsendingu á Íslandi í dag.
Fréttastofa Sýnar, áður Stöðvar 2, hóf göngu sína þann 9. október árið 1986 og hefði orðið 40 ára gömul haust.
Í tilkynningu sem Vísir greinir frá segir að stjórnendur hafi tekið ákvörðunina „í ljósi breyttra neysluvenja almennings þar sem sífellt fleiri sækja sér fréttir og fréttatengt efni á stafrænum miðlum. Sýn muni því beina auknum krafti að fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og leggja áherslu á að miðla fréttum þar sem eftirspurn eftir fréttaefni er mikil.“
Leiðrétting: Í fyrstu útgáfu kom fram …