Háttsettur embættismaður hjá bandarísku leyniþjónustunni CIA er grunaður um að hafa stolið fé af vinnuveitanda sínum.
Bandaríska alríkislögreglan gerði húsleit hjá manninum í gær. Þar fundust gullstangir sem eru verðmetnar á 40 milljónir dollara, andvirði um fimm milljarða króna. Maðurinn var einnig með tvær milljónir dollara, andvirði um 250 milljóna króna, og 35 lúxusúr í vörslu sinni.
Maðurinn, David Rush, var handtekinn í síðustu viku og ákærður fyrir þjófnað á opinberu fé. Hann hafði mánuðina á undan ítrekað farið þess á leit við yfirmenn sína að fá háar fjárhæðir í erlendum gjaldmiðlum og tugmilljóna virði af gullstöngum. Þetta sagði hann að væri vegna vinnutengdra útgjalda.
Rush fékk gullið og peningana án þess að gera grein fyrir því hvers vegna hann þyrfti á verðmætunum að halda. Síðar kom í ljós að hvorki gullið né peningana var að finna í geymslu á vinnustaðnum. Það varð til þess að húsleit var gerð á heimili hans.
Rannsókn hefur leitt í ljós að Rush gaf rangar upplýsingar um menntun sína og hernaðarbakgrunn þegar hann sótti um starfið hjá CIA. Hann laug meðal annars til um prófgráður og að hafa verið flugmaður hjá bandaríska flotanum. Maðurinn er sagður hafa svikið út laun hjá hernum með því að þykjast vera varaliðsmaður.