Sænsk stjórnvöld ætla að afhenda stjórnvöldum í Úkraínu rússneskt flutningaskip sem grunað er um að hafa flutt farm af stolnum korntegundum frá hernumdum svæðum Úkraínu. Skipið tilheyrir svokölluðum skuggaflota Rússa.
Flutningaskipið, sem er 96 metra langt, er í eigu skipafélagsins Caffa Shipping Ltd. Félagið reyndi ítrekað að koma í veg fyrir að skipið yrði afhent Úkraínumönnum og hafði þegar áfrýjað dómum tveimur lægri dómstóla þegar Hæstiréttur í Svíþjóð hafnaði endanlega kröfum þess 4. ágúst.
Andríj Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, þakkaði sænskum stjórnvöldum fyrir að verða við beiðni Úkraínumanna á samfélagsmiðlinum X í dag. Skipið verður flutt til Úkraínu þar sem það verður rannsakað.
„Þessi tímamótaákvörðun setur mikilvægt fordæmi og sýnir að markvissar aðgerðir lögreglu og saksóknara, innan sjálfstæðs og óhlutdrægs réttarkerfis, geta dregið ríki til ábyrgðar,“ skrifar Sybiha.
Sigldi undir fölskum fána Gíneu
Sænska lögreglan stöðvaði flutningaskipið Caffa eftir að hafa séð til þess við strendur Trelleborgar í suðurhluta landsins í mars. Skipið sigldi undir fölskum fána Gíneu og var á leið til Pétursborgar í Rússlandi. Tíu af ellefu skipverjum voru rússneskir ríkisborgarar.
Þegar upp komst um skipafundinn ákváðu úkraínsk stjórnvöld að leita réttar síns og báðu um aðstoð Svía.
Samkvæmt Vladyslav Vlasiuk, sem fer með málefni refsiaðgerða fyrir hönd úkraínskra stjórnvalda, var skipið að flytja stolinn farm af úkraínskum korntegundum.
Hann segir skipið áður hafa komið að flutningi stolinna matvæla frá hernumdum svæðum Úkraínu, meðal annars frá höfninni í Sevastópol á Krímskaga í júlí 2025.