Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra þykir sérstakt að ætla sér að fara fram á sérstakan þingstubb í ágúst til að ræða fjármálaáætlun og fyrirhugaða atkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið.
Þetta kom fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi.
Þar spurði hún hvort Kristrún teldi það samrýmast ábyrgri stjórnarforystu að hafna þingstubbi í ágúst.
„[...] þegar sú leið gæfi Alþingi tækifæri til að ræða Evrópumálin og tryggja að fjármálaáætlun ríkisins byggist á raunverulegum og uppfærðum forsendum,“ sagði Guðrún í fyrri fyrirspurn sinni.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið fram á þingstubb í ágúst í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst.
„Nú er komið að þjóðinni“
Svaraði Kristrún að henni þætti sérstakt að fara fram á sérstakan þingstubb um fjármálaáætlun nokkrum vikum áður en endanleg fjárlög verða lögð fram.
Varðandi Evrópusambandið sagði Kristrún:
„Þjóðin fær boltann núna. Þjóðin veit sínu viti. Hér hefur átt sér stað mikil umræða um Evrópusambandið, ekki bara í tengslum við þessa þingsályktunartillögu heldur í raun frá því að þetta kjörtímabil hófst. Nú er komið að þjóðinni.“
Guðrún gaf lítið fyrir svar Kristrúnar og sagði það „jaðra við rugl“.
„Það er ekki trúverðugt að þjóðin eigi að ákveða Evrópumálin en hafna um leið því að Alþingi geti rætt þau almennilega áður en kosið er,“ sagði Guðrún.