Svanhildur Hólm, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, sótti fyrir Íslands hönd nokkuð umdeilda ráðstefnu í Washington, sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, og Stephen Miller, ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, gengust fyrir. Ráðstefnan fjallaði um vaxandi ofbeldisógn af hálfu öfgafullra, vinstri sinnaðra pólitískra hreyfinga. Ráðstefnan er nokkuð umdeild og gagnrýnendur hennar segja hana vera áróðursbragð vegna komandi þingkosninga í Bandaríkjunum í haust.
Svanhildur sat umdeilda ráðstefnu um ofbeldisógn á vinstri vængnum