Svana Lovísa er fædd árið 1986 og vakti snemma athygli sem bloggari á Trendnet. Hún er með 15,6 þúsund fylgjendur á Instagram og hefur verið dugleg að deila fallegum smáatriðum úr íbúð sinni þar. Í dag sinnir hún blómaskreytingunum að fullum krafti og segist í samtali við blaðamann opin og full tilhlökkunar fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum í þeim geira.
Íbúð Svönu Lovísu og fjölskyldu hennar er í Köldukinn 29 í Hafnarfirði. Er um að ræða rúmgóða og mikið endurnýjaða fjögurra herbergja íbúð á efri hæð á eftirsóttum stað í Hafnarfirði í Kinnunum. Íbúðin er 118,6 fermetrar auk geymslu sem er ekki talin inn í fermetratölu og ásett verð er 95 milljónir. Hér má sjá nánari upplýsingar um eignina.