Lokatölur liggja fyrir í Fjarðabyggð. Sjálfstæðisflokkurinn fær 29,04%. Hann fær þrjá sveitarstjórnarfulltrúa og missir einn. Samfylkingin og annað félagshyggjufólk, Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn fá hver um sig tvo fulltrúa. Framsóknarflokkurinn missir líka einn fulltrúa.
Þetta er í fyrsta sinn sem Miðflokkurinn og S-listinn bjóða fram í Fjarðabyggð og í fyrsta sinn frá því að Fjarðalistinn var stofnaður 1998 sem hann býður ekki fram.
Meirihluti Framsóknar og Fjarðalistans sprakk á kjörtímabilinu og Framsókn myndaði nýjan meirihluta með Sjálfstæðisflokknum.
Lokatölur eru komnar í Norðurþingi. Þar fékk Sjálfstæðisflokkurinn mest fylgi og öll framboðin náðu fulltrúa inn í bæjarstjórn.
Framsóknarflokkurinn tapaði mestu fylgi (13,5%) en Óskalistinn, sem er nýtt framboð, bætti mestu við sig (13,9%).
A-listi Framboðslista um öflugt samfélag í vaxandi sveitarfélagi skipar meirihluta í sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps á næsta kjörtímabili. Talningu er lokið og hlaut listinn 66,7 prósent atkvæða og fjóra af fimm hreppsnefndarmönnum.
Ö-listi Betri sveitar – fyrir okkur öll fékk 33,3 prósent og einn kjörinn fulltrúa. Ö-listinn varð til upp úr samtali fólks sem hafði meðal annars barist fyrir hagsmunum íbúa í sumarbústaðabyggð.
„Þetta er skellur, en dómurinn er fallinn,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Fyrstu tölur hafi verið mikil vonbrigði. Samkvæmt þeim missir Samfylkingin helminginn af fylgi sínu og fer úr fjórum bæjarfulltrúum í tvo.
„Það er ekki vanalegt í pólitík að bera ábyrgð en ég ætla nú að gera það hér. Þetta er meira mín ábyrgð heldur en flokksins. Ég held að þetta séu skilaboð til mín og það að nú eigi ég að hugsa minn gang. Það ætla ég að gera,“ segir Guðmundur Árni.
Hann útilokar ekki að stíga til hliðar.
Aðeins munar 0,1% á Sjálfstæðisflokknum og Bæjarlista Akureyrar samkvæmt nýjustu tölum. Báðir listar myndu ná inn tveimur sveitarstjórnarfulltrúum eins og staðan er núna. Það myndu líka Samfylkingin og Framsóknarflokkur.
Akureyrarlistinn, Miðflokkurinn og Vinstrihreyfingin grænt framboð fengju öll einn fulltrúa.
Nýjar tölur hafa verið birtar á Akranesi. Þær breyta stöðunni nokkuð því nú er oddviti Miðflokksins kominn inn á kostnað fjórða manns Sjálfstæðisflokksins, sem var inn i eftir fyrstu tölur. Báðir flokkar bæta við sig dálitlu fylgi frá fyrstu tölum en þar sem mjótt er á mununum um hver er síðasti maður inn í bæjarstjórn skilar breytingin Miðflokknum inn að þessu sinni.
Búið er að telja 40,7% atkvæða.
Byggðalistinn er sigurvegari kosninganna í Skagafirði, bætir við sig tíu prósentustigum milli kosninga og einum fulltrúa í sveitarstjórn. Hann er með mest fylgi allra flokka og þrjú sæti í sveitarstjórn líkt og Sjálfstæðisflokkurinn sem bætir einnig við sig fylgi.
Búið er að telja 63 prósent atkvæða.
Framsóknarflokkurinn tapar einum fulltrúa en Miðflokkurinn, sem býður fram í fyrsta skipti, fær einn mann kjörinn.
VG fengu 20 prósent síðast en buðu ekki fram í ár.
Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn voru í meirihluta á síðasta kjörtímabili og sá meirihluti heldur.
Gert er ráð fyrir því að fyrstu tölur í Reykjavík verði birtar um eittleytið. Samfylkingarfólk í Reykjavík bíður spennt eftir fyrstu tölum. Kosningavaka Samfylkingarinnar er í Austurbæjarbíói.
Úrslitin liggja fyrir í Hveragerði þar sem búið er að telja öll atkvæði. Þar urðu þau tíðindi að meirihluti Framsóknarflokksins og O-lista Okkar Hveragerðis féll.
Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig miklu fylgi og einum bæjarfulltrúa og er nú stærstur allra flokka í bæjarstjórn.
Bæði Framsóknarflokkurinn og Okkar Hveragerði töpuðu bæjarfulltrúum.
Samfylkingin og óflokksbundin buðu fram í fyrsta skipti síðan 2014 og komu einum bæjarfulltrúa að.
Úrslitin liggja fyrir í Eyjafjarðarsveit. Þar bar F-listinn sigur úr býtum líkt og í öllum kosningum frá 2014. Hann fékk að þessu sinni 62,7 prósent atkvæða og fimm af sjö sveitarstjórnarmönnum.
K-listinn fékk 37,3 prósent og tvo fulltrúa.
Þó er rétt að geta þess að mjög mjótt var á munum milli fimmta fulltrúa F-listans og þriðja fulltrúa K-listans. Aðeins munaði tveimur atkvæðum á þeim þegar upp var staðið.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið með hreinan meirihluta í bæjarstjórn Ölfuss síðustu tvö kjörtímabilin og það verður engin breyting á því nú. Reyndar bætir flokkurinn verulega við sig fylgi og fer úr 55,9 prósentum í 69,3 prósent. Þetta er langstærsti sigur flokksins í sveitarfélaginu. Fyrra metfylgi sitt fékk flokkurinn einmitt í kosningunum fyrir fjórum árum.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum bæjarfulltrúa og fær nú fimm. Samfylkingin fær tvo.
B-listi Framfarasinna og Íbúalistinn buðu fram síðast en ekki að þessu sinni.
Lokatölur eru komnar frá Þingeyjarsveit og þar er Á-listi Ábyrgðar efstur með 49,12% og fjóra sveitarstjórnarfulltrúa. L-listi Framfara fær 29,22% og tvo fulltrúa en N-listinn 21,66% og einn fulltrúa.
Enginn þessara lista bauð fram í sveitarfélaginu 2022. E-listinn fékk þá hreinan meirihluta en klofnaði 2024 og tveir fulltrúar listans mynduðu meirihluta með K-listanum. Annar þeirra var Knútur Emil Jónasson, sem leiðir nú Á-listann.
Talningu er lokið í Vestmannaeyjum.
Sjálfstæðisflokkurinn er kominn aftur í meirihluta eftir tvö kjörtímabil í minnihluta. Íris Róbertsdóttir, sem leiddi Fyrir Heimaey og hefur verið bæjarstjóri síðustu átta árin, er bæjarstjóraefni flokksins.
Talningu er lokið í Grindavík. Úrslitin eru með svipuðum hætti og þegar fyrstu tölur birtust. Framsóknarflokkurinn fékk flest atkvæði og hann og Sjálfstæðisflokkurinn eiga flesta bæjarfulltrúa, þrjá hvor.
Sjálfstæðisflokkurinn er sigurvegari kosninganna í Garðabæ. Flokkurinn bætir við sig tæpum níu prósentustigum og einum bæjarfulltrúa, fer úr sjö í átta.
Búið er að telja 41 prósent atkvæða.
Flestir aðrir flokkar tapa fylgi í Garðabæ, nema Miðflokkurinn sem bætir aðeins við sig en nær ekki kjörnum fulltrúa. Viðreisn og Garðabæjarlistinn tapa hvor sínum bæjarfulltrúanum en Samfylkingin býður ný fram og fær einn bæjarstjórnarmann.
K-listi er áfram stærsta aflið í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar með þrjá bæjarfulltrúa af sjö. Hann var þó ekki langt frá því að ná meirihluta í bæjarstjórn. Aðeins munaði þremur atkvæðum á Bessa Ragúels Víðissyni, öðrum manni á D-lista, og Dominique Sigrúnardóttur, sem skipaði fjórða sætið á D-lista. Talningu er lokið.
Sjálfstæðisflokkurinn hélt sínum tveimur bæjarfulltrúum en Framsóknarflokkurinn tapaði öðrum sínum til Byggðalistans sem bauð fram í fyrsta skipti síðan 2010.
Það er óhætt að segja að ekki hafi orðið miklar breytingar á kosningaúrslitum í Rangárþingi ytra milli kosninga. Fyrir fjórum árum vann Á-listinn naumlega meirihluta og raunin varð sú sama að þessu sinni. Þó jókst meirihlutinn um tæplega eitt prósentustig.
Sjálfstæðismenn og óháðir í Hrunamannahreppi mega vel við una því þeir styrktu stöðu sína frá síðustu kosningum. Búið er að telja 75 prósent atkvæða.
Sjálfstæðismenn og óháðir fóru úr 56 í 66 prósent og L-listinn úr 44 í 34. Skipting kjörinna fulltrúa er óbreytt, þrír hjá D-lista og tveir hjá L-lista.
O-listi Betri Bolungarvíkur hafði betur í baráttunni við Mátt manna og meyja um völdin í Bolungarvík. Máttur manna og meyja fékk meirihluta í síðustu kosningum en nú hafði O-listinn betur.
O-listinn hlaut 57,6 prósent atkvæða og fjóra af sjö sveitarstjórnarmönnum. Máttur manna og meyja fékk 42,4 prósent og þrjá sveitarstjórnarmenn.
Framfaralistinn heldur meirihluta í Flóahreppi og bætir við sig einu sæti í sveitarstjórn. Hann fékk 16,77% atkvæða og 4 sveitarstjórnarmenn. T-listinn fékk 23,23%. Hann missti eitt sæti og heldur einu.
Notast er við rafræna kjörskrá í kosningum í Flóahreppi en það er eina sveitarfélag landsins þar sem slík kosning fer fram. Formaður landskjörnar segir rafræna kosningu vera framtíðina þar sem kjörskráin uppfærist í rauntíma og allt á stafrænu formi.
Haraldur Benediktsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, og samstarfsfólk hans í A-lista Samhentrar sveitar sigruðu örugglega í Hvalfjarðarsveit. Framboðið fékk 69,1 prósent atkvæða og fimm af sjö sveitarstjórnarmönnum.
Í-listi Íbúahreyfingarinnar fékk 30,9 prósent og tvo sveitarstjórnarmenn.
Lokatölur liggja fyrir í Húnaþingi vestra. Nýtt afl er efst og fær þrjá sveitarstjórnarmenn með 37,77% atkvæða. Framsókn og aðrir framfarasinnar frá tvo með 34,19% og Sjálfstæðismenn og óháðir jafn marga með 28,04%.
Sömu listar buðu fram og í síðustu kosningum 2022.
Einhverjar sögulegustu kosningarnar í ár eru í Grindavík, þær fyrstu eftir náttúruhamfarirnar snemma á síðasta kjörtímabili. Þrír flokkar voru í framboði en tveir sem buðu fram síðast voru ekki í kjöri nú: Samfylkingin og óháðir, Rödd unga fólksins.
Þegar búið er að telja 44,6 prósent atkvæða er Framsóknarflokkurinn sá sem á mestu fylgi að fagna, með 44,1 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn kemur þar skammt á eftir með 41,5 prósent. Báðir fá samkvæmt þessu þrjá bæjarfulltrúa, Framsókn bætir tveimur við sig og Sjálfstæðisflokkurinn einum.
Miðflokkurinn tapar stórt í þessum kosningum. Hann var stærstur síðast með 32,4 prósent og þrjá bæjarfulltrúa en fær einn bæjarfulltrúa og 14,3 prósent samkvæmt fyrstu tölum.
Sjálfstæðisflokkurinn er með 55,6% í Vestmannaeyjum þegar búið er að telja 30,42% atkvæða. Þar á eftir er Miðflokkurinn með 23,98% og svo Eyjalistinn með 20,36%
Fyrir Heimaey ákvað að bjóða ekki fram aftur en Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. Fyrir Heimaey fékk 36% í síðustu kosningum 2022.
Miðflokkurinn er að bjóða fram í fyrsta sinn í Vestmannaeyjum.
Samkvæmt þessu er Sjálfstæðisflokkurinn kominn með meirihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja í fyrsta sinn síðan kjörtímabilið 2014 til 2018. Þá fékk flokkurinn 73 prósent atkvæða sem varð Bjarna Benediktssyni, þáverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, tilefni til að segja „fokking ótrúlegt“ í skilaboðum til Elliða Vignissonar, þáverandi bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæðismanna í Eyjum.
D-listinn og aðrir lýðræðissinnar eru með meirihluta í bæjarstjórn Rangárþings eystra þegar búið er að telja 74 prósent atkvæða. Listinn bætir talsvert við sig milli kosninga og fer úr 43 prósentum í 55 prósent atkvæða. Þar með nær hann meirihluta í sveitarfélaginu.
Framsókn og aðrir framfarasinnar tapa einum fulltrúa en N-listinn heldur sínum.
Listi Framfarasinna heldur meirihluta sínum í Stykkishólmi og fær fleiri atkvæði en fyrir fjórum árum. Hann er nú með 60,2 prósent og fjóra bæjarfulltrúa. Íbúalistinn fær 39,8 prósent og þrjá bæjarfulltrúa.
Framsóknarmenn eru sigurvegarar kosninganna í Hafnarfirði þar sem þeir rúmlega tvöfalda fylgi sitt og fá þrjá bæjarfulltrúa í stað eins. Meirihluti þeirra og Sjálfstæðisflokksins heldur.
Búið er að telja 37,4 prósent atkvæða í Hafnarfirði.
Sjálfstæðisflokkurinn er áfram stærstur eins og í síðustu kosningum en tapar 3,5 prósentum af fylgi sínu og einum bæjarfulltrúa.
Samfylkingin tapar þó mestu og fer úr fjórum bæjarfulltrúum í tvo, missir hátt í helminginn af fylgi sínu. Viðreisn fer úr einum bæjarfulltrúa í tvo og Miðflokkurinn kemst í fyrsta sinn inn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Lokatölur eru komnar frá Sveitarfélaginu Skagaströnd þar sem búið er að telja rúmlega 88% atkvæða. Enginn sitjandi sveitarstjórnarfulltrúi bauð fram í þessum kosningum.
Samfylkingin og óháðir eru með 43,28% og fá tvö sæti. K-listinn Fyrir Skagaströnd fær jafnmörg með 40% fylgi. Framsókn fær 16,72% og eitt sæti.
Skagastrandarlistinn hefur verið með hreinan meirihluta frá 1994 og var sjálfkjörinn 2022. Því voru engar sveitarstjórnarkosningar á Skagaströnd 2022. Listinn hætti við að bjóða fram í ár.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur meirihluta sínum í Árborg og gott betur því hann bætir við sig einum bæjarfulltrúa og fær sjö af ellefu fulltrúum.
Búið er að telja 45,6 prósent atkvæða.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 46,4 prósent atkvæða fyrir fjórum árum en er nú með 52,9 prósent.
Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin og óháðir halda sínum tveimur bæjarfulltrúum.
Viðreisn býður fram í fyrsta sinn og nær ekki inn. Hún er þó ekki langt frá því, aðeins munar átta atkvæðum á oddvita Viðreisnar og sjöunda manni Sjálfstæðisflokksins.
Áfram Árborg og VG buðu ekki fram að þessu sinni og Miðflokkurinn féll á tíma, skilaði of seint inn framboðsgögnum.
„Teningnum hefur verið kastað. Nú er þjóðin búin að segja sitt og við erum að bíða eftir því að heyra hvað hún sagði nákvæmlega,“ segir Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins.
Fjölmennt er á kosningavöku Miðflokksins á Hótel Borg þar sem fréttastofa ræddi við Snorra og liðsmenn Ungra Miðflokksmanna sem hafa verið í farabroddi í kosningabaráttu flokksins á samfélagsmiðlum.
Meirihluti Framsóknarflokksins í Borgarbyggð er fallinn. Þegar búið er að telja 51 prósent atkvæða blasir við að Framsóknarflokkurinn tapar nær helmingnum af fylgi sínu milli kosninga, fer úr 49,7 prósentum í 26,1.
Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn stærstur í Borgarbyggð með 29,7 prósent atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa. Borgarbyggðarlistinn og Miðflokkurinn, sem hafa ekki boðið fram áður, fá um 23 prósent og tvo bæjarfulltrúa hvor.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í Fjarðabyggð þrátt fyrir að hann tapi fylgi milli kosninga. Það fer úr 40,6 í 29,6 prósent og flokkurinn fær þrjá bæjarfulltrúa í stað fjögurra.
Búið er að telja 47 prósent atkvæða.
Samfylkingin fær næstflest atkvæði, 28,5 prósent. Hún, Framsókn og Miðflokkurinn, sem bauð ekki fram síðast, fá tvo bæjarfulltrúa hver flokkur. Framsókn tapar tíu prósentum og einum bæjarfulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum.
Þetta er í fyrsta skipti síðan á síðustu öld sem Fjarðalistinn er ekki í framboði.
Bæjarlistinn er sjónarmun stærri en Samfylkingin á Akureyri þegar búið er að telja fjórðung atkvæða. Samfylkingin bætir þó við sig einum bæjarfulltrúa á sama tíma og Bæjarlistinn tapar einum.
Bæjarlistinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn eru saman í meirihluta og með því að Bæjarlistinn tapar einum manni fellur meirihlutinn.
Akureyrarlistinn, sem er klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum, kemur einum fulltrúa að, fyrrverandi varabæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Flokkur fólksins bauð ekki fram að þessu sinni. Hann náði inn í síðustu kosningum en fulltrúar hans sögðu skilið við flokkinn.
Sjálfstæðisflokkurinn er efstur í Borgarbyggð þegar búið er að telja rúmlega helming atkvæða. Hann er með 29,68%. Fjórir listar bjóða fram í sveitarfélaginu og munurinn er ekki mikill eins og er.
Framsókn er með 26,12%, Borgarbyggðarlistinn með 22,49% og Miðflokkurinn 21,7%.
Þetta eru fyrstu sveitarstjórnarkosningarnar eftir sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps í fyrra. Framsóknarflokkurinn fékk hreinan meirihluta í Borgarbyggð í síðustu kosningum þar 2022.
Framsóknarflokkurinn hefur fengið flest atkvæði í Ísafjarðarbæ þegar búið er að telja fjórðung atkvæða.
Þarna eru miklar breytingar því Ísafjarðarlistinn, sem var í meirihluta á síðasta kjörtímabili, býður ekki fram og er það í fyrsta sinn í 20 ár. Samfylkingin og Viðreisn buðu fram í stað hans. Miðflokkurinn bauð líka fram í fyrsta skipti. Hann er samkvæmt fyrstu tölum eina framboðið sem kemur ekki manni í bæjarstjórn.
Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn bæta við sig einum bæjarfulltrúa hvor flokkur.
Búið er að telja tæpan helming atkvæða í Norðurþingi. Þar eru allnokkur tíðindi og breytingar milli kosninga.
Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að taka við af Framsóknarflokki sem stærsti flokkurinn í bæjarstjórn en báðir tapa þó atkvæðum frá því fyrir fjórum árum. Sex listar eru í framboði og allir ná inn kjörnum fulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum.
Framsóknarflokkurinn tapar einum og Samfylkingin bætir við sig einum. Óskalistinn kemur nýr inn og fær kjörinn fulltrúa.
Þegar 58 prósent höfðu verið talin hafði orðið breyting á atkvæðahlutfalli en ekki skiptingu sæta í bæjarstjórn.
Samkvæmt nýjustu tölum úr Mýrdalshreppi er listi Samfélagsins með forskot á A fyrir alla. Samfélagið er með 58,13% og A fyrir alla með 41,87% þegar búið er að telja 62,61% atkvæða.
Meirihlutinn er fallinn í Reykjanesbæ ef marka fá fyrstu tölur. Sjálfstæðisflokkur er með 38 prósent atkvæða þegar tæpur þriðjungur atkvæða hefur verið talinn.
Vilhjálmur Árnason oddviti flokksins segist hafa fundið mikinn meðbyr og kveðst hlakka til fara að vinna fyrir bæjarfélagið. Vilhjálmur segir ekki enn liggja fyrir hvort hann hætti á þingi nái Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta í bænum.
„Það á bara allt eftir að koma í ljós.Nú bara klárum við þetta kvöld og ræðum svo framtíðina hvað það varðar,“ segir Vilhjálmur.
Fyrstu tölur benda til að Samfylkingin missi mann en oddvitinn Guðný Birna Guðmundsdóttir segir nóttina unga og að enn eigi eftir að telja talsvert. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti Framsóknarflokksins tekur í sama streng.
Gunnlaugur Kárason oddviti Miðflokks fagnar því að flokkurinn sé að fá mann í bæjarstjórn. Arnar Páll Guðmundsson oddviti Viðreisnar, sem ekki næði inn manni miðað við fyrstu tölur, segir ekki alla nótt úti enn.
Búið er að telja rúmlega 60% atkvæða á Seltjarnarnesi. Hér eru nýjustu tölur.
Sjálfstæðisflokkurinn er efstur með 58,86%. Þetta stefnir í bestu niðurstöðu flokksins í sveitarfélaginu frá 2006, þegar hann fékk 67,2%.
Miðflokkurinn bauð fram á Seltjarnarnesi í fyrsta sinn líkt og sameiginlegur listi Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra.
Miðflokkurinn er með 14,54% eins og staðan er og Samfylkingin, Viðreisn og óháðir eru með 34,6%.
Búið er að telja rúmlega fjórðung atkvæða á Akranesi. Þar er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur. Atkvæðahlutfall hans lækkar um eitt prósent frá síðustu kosningum en kjörnum fulltrúum hans fjölgar samt úr þremur í fjóra vegna dreifingar atkvæða.
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn eru með 23 prósent hvor flokkur og tvo bæjarfulltrúa. Báðir flokkar missa einn bæjarfulltrúa.
Viðreisn bauð fram í fyrsta skipti og fær einn bæjarfulltrúa samkvæmt fyrstu tölum. Miðflokkurinn bauð fram 2018 en náði ekki inn og var ekki í framboði síðast. Hann nær ekki inn fulltrúa eins og staðan er núna.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi milli kosninga og er með 38 prósent atkvæða þegar búið er að telja tæplega þriðjung greiddra atkvæða. Hann fjölgar bæjarfulltrúum sínum úr þremur í fimm og fær samkvæmt þessu sína bestu kosningu í 20 ár.
Miðflokkurinn sem fékk 1,8 prósent fyrir fjórum árum fær nú 11,1 prósent og einn bæjarfulltrúa.
Miðað við þetta vænkast mjög vonir Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og oddvita hans í Reykjanesbæ, um að verða bæjarstjóri.
Framsókn bætir við sig fylgi og Viðreisn sem býður fram í fyrsta skipti fær fimm prósent. Samfylkingin dalar milli kosninga og missir einn bæjarfulltrúa.
Talsverðar breytingar urðu á stjórnmálalandslaginu milli kosninga. Bein leið og Píratar og óháðir bjóða ekki fram og Umbót rann saman við Sjálfstæðisflokkinn.
Fyrstu tölur kvöldsins bárust úr Svalbarðsstrandarhreppi um klukkan átta þar sem kjörsókn var rúm 78 prósent. Bjarni Þór Guðmundsson efsti maður á lista Ströndungs sagði í samtali við kosningaútvarp Rásar 2 menn þegar tekna að ræða saman og fara yfir framtíðina í sameiginlegu kosningapartýi.
Hann segist vera að ljúka öðrum verkefnum áður en hann mætir í teitið en hefur frétt að stemmningin sé góð. Allir vilji sveitarfélaginu vel og því auðvelt að ná samkomulagi.
Stóru málin eru meðal annars fráveitumál, stækkun skóla og félagslíf eldri borgara. Galdurinn að baki skjóti talningu segir Bjarni Þór einfaldan, atkvæði séu fá og smurt gengur að telja. Alls greiddu 295 af 377 kjósendum atkvæði.
Í Árneshreppi var listakosning í fyrsta sinn í mörg ár. Hér eru lokatölur þaðan.
Framtíð Árneshrepps er efst með 58,49% atkvæða og Sólstöður eru með 41,51%.
Samfylkingin og óháðir eru með flest atkvæði þegar búið er að kjósa þriðjung atkvæða í Suðurnesjabæ, 33,6 prósent og þrjá bæjarfulltrúa. D-listi og óháðir eru með jafn marga bæjarfulltrúa út á 26,8 prósent. D-listi og óháðir voru stærstir á síðasta kjörtímabili.
Framsókn og óháðir hafa fengið 22,9 prósent atkvæða og tvo bæjarfulltrúa. Miðflokkurinn er með 16,7 prósent og einn bæjarfulltrúa.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi í Kópavogi og fær 45 prósent atkvæða og meirihluta bæjarfulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum. Ef þetta gengur eftir er Sjálfstæðisflokkurinn að fá sína bestu kosningu í Kópavogi síðan 2006.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 33,3 prósent atkvæða fyrir fjórum árum. Það dugði honum til fjögurra fulltrúa í bæjarstjórn. Nú skila 45 prósent honum 6 fulltrúum. Samfylkingin bætir líka við sig miklu fylgi og fer úr 8,2 prósentum í 19,3 prósent.
Viðreisn heldur sínum manni og Miðflokkurinn fær inn fulltrúa eftir að hafa ekki náð kjöri fyrir fjórum árum. Framsókn tapar einu sæti.
Í Fljótsdalshreppi var óbundin kosning. Halla Auðunardóttir fékk mest fylgi og þar á eftir var Guðni Jónsson.
- 58 atkvæði – Halla Auðunardóttir
- 47 atkvæði – Guðni Jónsson
- 30 atkvæði – Þórhallur Jóhannsson
- 28 atkvæði – Lárus Heiðarsson
- 27 atkvæði – Helga Eyjólfsdóttir
Helgi Gíslason varð sveitarstjóri Fljótsdalshrepps 2020 en sóttist ekki eftir því að halda áfram.
Fleiri breytingar verða í sveitarfélaginu, líkt og fram kemur á vef Austurfréttar. Þar er sagt frá því að Jóhann F. Þórhallsson og Anna Jóna Árnmarsdóttir hafi beðist undan endurkjöri.
Jóhann F. Þórhallsson tók fyrst sæti árið 1998 og Anna Jóna Árnmarsdóttir var kjörin sem varamaður árið 1998 og hefur setið óslitið í sveitarstjórn síðan. Þar með er hún sá fulltrúi á Austurlandi sem hefur starfað lengst.
Úrslitin liggja fyrir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þar var L-listi Samvinnulistans með meirihluta á síðasta kjörtímabili og það verður engin breyting á því að þessu sinni.
L-listinn fékk 57,3 prósent atkvæða og þrjá fulltrúa. E-listi Uppbyggingar fékk 42,7 prósent atkvæða og tvo fulltrúa.
Lokatölur eru komnar úr Reykhólahrepp og Raddir okkar allra fengu mest fylgi með 71,5%.
Samfylkingin og óháðir fengu 28,45%
Kjörfundi er lokið um land allt og búið er að loka kjörstöðum. Úrslitin eru því ráðin – að því leyti að kjósendur hafa talað en nú er bara eftir að telja atkvæðin og komast að vilja þeirra.
Við segjum allar nýjustu fréttir hér á fréttavaktinni. Svo má ekki gleyma kosningavökum í sjónvarpi og á Rás 2. Horfa má á kosningavöku sjónvarps efst í þessari fréttavakt.
Búið er að telja í Ásahreppi. Þar voru engir framboðslistar og því allir í framboði.
Ísleifur Jónasson og Helga Björg Helgadóttir fengu 86 atkvæði hvort, Kristín Hreinsdóttir 72, Gréta Vilborg Guðmundsdóttir 47 og Emil Þórðarson fékk 46 atkvæði.
Mikil endurnýjun er í Strandabyggð þar sem tveir nýir listar voru í framboði, B-listi Framsóknar og óháðra og G-listi Vegvísis. Mikið gekk á á kjörtímabilinu og fimm sveitarstjórnarfulltrúar höfðu beðist lausnar um mitt kjörtímabil.
Vegvísir náði meirihluta í sveitarstjórn, fékk þrjá af fimm fulltrúum út á 49,7 prósent atkvæða.
Framsóknarmenn og óháðir með 26,0 prósent og Strandabandalagið með 24,3 prósent fengu sinn hvorn fulltrúann kosinn.
Miklar breytingar urðu í sveitarstjórn Skaftárhrepps þar sem Sjálfstæðismenn unnu meirihluta, fengu 62,2 prósent atkvæða og þrjá af fimm kjörnum fulltrúum. Ö-listi Öflugs samfélags fór úr fjórum fulltrúum í tvo og fékk 37,8 prósent atkvæða.
Fyrstu úrslit dagsins bárust úr Svalbarðsstrandarhreppi þar sem Ö-listi Ströndungs átti mestu fylgi að fagna. Hann fékk 42,0 prósent atkvæða og tvo fulltrúa kjörna. Strönd til framtíðar fékk einnig tvo fulltrúa, með 34,7 prósent.
Samstaða rak lestina með 23,3 prósent og einn kjörinn fulltrúa. Listi Samstöðu hafði vissa sérstöðu því þar voru aðeins konur á lista.
Sums staðar verða afgerandi úrslit í nótt og sums staðar verður mjótt á munum. Þetta þekkjum við frá fyrri kosninganóttum – og morgnum ef út í það er farið.
Hvert atkvæði getur skipt máli. Síðasti Þjóðarpúls Gallups fyrir kosningar í Reykjavík gaf til dæmis til kynna að mjótt væri á munum milli þriðja manns Miðflokksins og sjötta frambjóðanda á lista Samfylkingarinnar.
Sagan geymir svo mörg dæmi um spennandi kosningar.
Fyrir fjórum árum þurfti hlutkesti til að ráða úrslitum í tveimur sveitarfélögum þar sem allir voru í framboði.
Anna Jóna Árnmarsdóttir og Urður Gunnarsdóttir fengu jafn mörg atkvæði í Fljótsdalshreppi og enduðu saman í fimmta sæti. Aðeins önnur gat þó tekið sæti í fimm manna sveitarstjórn. Kastað var upp á milli þeirra og varð Anna Jóna hlutskarpari. Hún var þá komin í háttinn og frétti ekki af úrslitunum fyrr en hún vaknaði næsta dag.
Jón Ingi Jónsson og Marinó Bjarnason fengu báðir 43 atkvæði í Tálknafjarðarhreppi og varð að kasta upp á milli þeirra hvor þeirra fengi fimmta og síðasta sætið í sveitarstjórn. Jón Ingi stóð uppi sem sigurvegari.
Sjaldnast þarf tvö hlutkesti til að ráða úrslitum en sú var raunin í Langanesbyggð 2014. Bæði þurfti að kasta upp á milli Halldóru Jóh. Friðbergsdóttur, af U-lista, og Hilmu Steinarsdóttur, hjá Nýju afli, um hvort yrði í þriðja sæti í sjö manna sveitarstjórn. Afdrifaríkara var þó að hlutkesti þurfti til að skera úr um hver yrði síðasti fulltrúinn inn í hreppsstjórn. Reynir Atli Jónsson, hjá Nýju afli, reyndist hlutskarpari en Karl Ásberg Steinsson, U-lista.
2002 þurfti að kasta hlutkesti til að ráða úrslitum um hvort fjórði maður af lista Framsóknar eða annar maður Borgarbyggðarlistans næði inn. Borgarbyggðarlistinn vann hlutkestið en Framsókn kærði kosningarnar og þær voru ógiltar. Í endurtekinni kosningu náði Framsókn sínum fjórða manni á kostnað Sjálfstæðisflokksins.
Góða kvöldið og velkomin á nýja fréttavakt. Hér ætlum við að fylgjast með talningu atkvæða, segja frá úrslitum og greina það helsta sem gerist.
Kjörstöðum verður lokað klukkan tíu í kvöld. Óljóst er hvenær talningu lýkur en við verðum á vaktinni þangað til.
Að neðan má sjá fréttavaktina frá því í dag.