Við ræðum við seðlabankastjóra um þessa ákvörðun og heyrum rök hans fyrir því að nauðsynlegt hafi verið að hækka vextina nú öðru sinni í röð.
Að auki fjöllum við áfram um meirihlutamyndanir að loknum kosningum. Hildur Björnsdóttir ræðir í dag við mögulega samstarfsflokka og í Reykjanesbæ eru Sjálfstæðismenn langt komnir með viðræður við Miðflokkinn um myndun nýs meirihluta.
Í sportpakka dagsins verður farið yfir tíðindin í enska boltanum í gær þegar Arsenal varð Englandsmeistari eftir að Manchester City gerði jafntefli við Bournemouth.