Stríðsreksturinn í Íran hefur kostað Bandaríkin 37,5 milljarða Bandaríkjadala eða sem jafngildir rúmlega 4.700 milljörðum króna. Það er litlu minna en verg landsframleiðsla Íslands í fyrra.
Frá þessu greindi Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í kvöld þegar hann mætti fyrir þingnefnd öldungadeildar bandaríska þingsins. Kostnaðurinn hefur aukist um rúmlega átta milljarða dala frá því um miðjan maí.
Vill tugi milljarða dala í aukafjárveitingu
Hegseth kom fyrir nefndina til að óska eftir 87 milljarða dala fjárframlagi til ráðuneytis síns. Þar af væru 67 milljarðar eyrnamerktir stríðsrekstrinum í Íran. Hann sagði beiðnina aðkallandi. Mikilvægt væri að ráðast í áríðandi fjárfestingar svo að Bandaríkin myndu ekki dragast aftur úr óvinum sínum. Án fjárins ætti varnarmálaráðuneytið á hættu að geta ekki greitt hermönnum laun auk þess sem verulega hefði dregið úr birgðum, bæði af skotfærum og öðrum hergögnum.
Spurður að því hvað myndi gerast ef ekki yrði orðið við þessari ósk varnarmálaráðuneytisins sagði Hegseth að draga þyrfti úr þjálfun hermanna. Þá sakaði hann ríkisstjórn Joes Bidens, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, um að bera ábyrgð á því að her landsins væri vanfjármagnaður.
Á fundinum sagði Hegseth að draga þyrfti úr þjálfun hermanna ef ekki fengist meira fé.
Sakaður um að fara á svig við hefðbundið fjárveitingaferli
Patty Murry, sem er reyndasti demókratinn í þingnefndinni, sagði ekki mikið vit í ósk Hegseths og ráðuneytis hans og sakaði ríkisstjórn Trumps um að reyna að fara fram hjá hefðbundnu ferli við fjárveitingar.
Kirsten Gillibrand, öldungadeildarþingmaður demókrata í New York, sakaði stjórn Trumps um að sækjast eftir „ótakmörkuðu fé fyrir sprengjum“ frá þinginu á sama tíma og fjöldi Bandaríkjamanna ætti ekki til hnífs og skeiðar. Hún spurði Hegseth hvers vegna hann óskaði eftir tugum milljarða dala til að fjármagna stríð sem Trump hefði nú þegar sagt vera unnið.
Þeirri spurningu svaraði Hegseth með orðunum: „Ég er að biðja um réttu sprengjurnar á réttum tíma.“
Ekki öruggt að repúblikanar samþykki beiðnina
Flestir demókratar eru mótfallnir aukafjárveitingunni. Það er nokkur kurr innan raða repúblikana í garð fjárveitingarinnar sömuleiðis og sumir vilja að skorið verði niður annars staðar til að vega upp á móti auknum fjárútlátum til stríðsreksturs.
Nái repúblikanar að tryggja meirihluta atkvæða með fjárveitingunni í báðum deildum, þar sem Repúblikanaflokkurinn er með meirihluta, er ljóst að Pentagon fær ekki féð fyrr en eftir um tvo mánuði.