Farþegabáturinn Skúlaskeið RE strandaði við sunnanverða Akurey í Kollafirði í morgun. Sextán farþegar voru um borð en þeir voru fljótlega fluttir í annan bát.
„Þetta eru góðar aðstæður. Eins og alltaf er björgunarskip kallað út og gæslan er með vökul augu á þessu,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að tilkynning um að báturinn hefði siglt upp á grjót hafi borist rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Hann segir engar sjáanlegar skemmdir hafa verið á honum.
Uppfært klukkan 14.55: Báturinn losnaði skömmu fyrir hálf þrjú þegar það flæddi að, samkvæmt upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar voru til taks og björgunarskip fylgdi bátnum sem sigldi á eigin vélarafli til Reykjavíkur.