Eldurinn kom upp í versluninni í Nordby, stærsta þéttbýli eyjarinnar, síðdegis í dag samkvæmt umfjöllun TV 2. Verslunin var rýmd og fleiri heimili í nágrenninu sömuleiðis og lögregla lokaði svæðinu. Mikill reykur myndaðist og hvatti lögregla almenning til að halda sig fjarri.
Stóð í ljósum logum í marga klukkutíma
Lögreglan í Syd- og Sønderjylland sagði upphaflega í tilkynningu að allt þak verslunarinnar stæði í ljósum logum. Lögregla á staðnum sagði við TV Syd að húsið myndi brenna til grunna og að slökkvistarf mynda halda áfram alla nóttina.
Seinna í kvöld tilkynnti lögreglan að viðbragðsaðilar hefðu náð stjórn á eldinum. Unnið yrði að því að slökkva í glóðum og taka til á vettvangi fram á morgun. Reykurinn er sagður eitraður og því þarf áfram að halda fjarlægð.
Íbúar fylgdust með
Hundruð eyjarskeggja söfnuðust saman við verslunina. Anders Frøkjær Ulrik, sem dvelur í sumarhúsi á Fanø sagði við Ekstra Bladet að hann hefði heyrt mikla bresti þegar múrsteinsframhlið hússins hrundi.
Siglingar Fanøfærgen milli Fanø og Esbjerg raskaðist vegna þess hve mörg neyðarökutæki þurftu að komast til eyjarinnar. Bílaröðin á Esbjerg-hlið lengdist í kjölfarið.