Við setningu Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal í gærkvöldi var undirrituð viljayfirlýsing um stofnun rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hólum þar sem rannsóknir á íslenska hestinum verða „í háskerpu“ að því er kemur fram í tilkynningu frá HÍ.
„Íslenski hesturinn er hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar, atvinnulífi, ferðaþjónustu, íþróttum, sögu og menningu. Hann er líka viðfangsefni sem kallar á vandaðar rannsóknir, þverfaglega nálgun og öfluga miðlun þekkingar,” sagði Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, við undirritun yfirlýsingarinnar.
Uppspretta nýrrar þekkingar
Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor HÍ sagði stofnun rannsóknasetursins mikilvægan áfanga í framtíðarsýn háskólans um að efla rannsóknir og menntun um land allt.
Rannsóknarsetur HÍ kallaði hún öflugar uppsprettur nýrrar þekkingar.
Fáir staðir eru jafn viðeigandi fyrir staðsetningu rannsóknaseturs um íslenska hestinn en Hólar hafa um áratugaskeið verið hjarta þekkingar um íslenska hestinn.
Eins og sveitarstjóri Skagafjarðar, Magnús Barðdal, komst að orði í gær er með þessari ákvörðun verið „bæði að varðveita þá sterku arfleifð og styðja við áframhaldandi þróun og uppbyggingu til framtíðar“.
Rannsóknarsetrið á Hólum í Hjaltadal verður ekki einungis það fyrsta sem tengist íslenska hestinum heldur jafnframt það fyrsta sem hefur bein tengsl við heilbrigðisvísindasvið Háskólans.