Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, segir Frakka þurfa að grípa til róttækra aðgerða vegna óeirða í landinu og flytja þá innflytjendur sem að þeim standa aftur til upprunaríkja sinna. Hann segir að þetta eigi einnig að ná til annarrar kynslóðar innflytjenda.
Þetta kemur fram í harðorðum pistli sem Stefán Einar birtir á Facebook þar sem hann gagnrýnir Emmanuel Macron Frakklandsforseta harðlega og sakar hann um stefnuleysi og linkind gagnvart afleiðingum innflytjendastefnu landsins.
Stefán Einar segir óeirðirnar vera afleiðingu þess sem hann kallar „sturlaða innflytjendastefnu“ þar sem stjórnvöld hafi í barnaskap sínum trúað því að inngilding og „misskilin góðmennska“ gætu tryggt friðsamlega sambúð ólíkra hópa.
Hann telur að nú sé komið að því að grípa til mun harðari aðgerða.
„Frakkar verða núna að bregðast af hörku við þessum veruleika. Þessi vandi verður ekki leystur nema með því að flytja óyndismennina úr landi og aftur til sinna upprunaríkja, það á einnig við um annarrar kynslóðar innflytjendur sem þarna eiga í hlut.“
Stefán Einar viðurkennir að slíkar aðgerðir geti virst ómannúðlegar en telur þær engu að síður nauðsynlegar.
„Þetta er sárt og virkar ómannúðlegt. En þetta er þó bæði sanngjarnara og mannúðlegra en að sjá vestræn gildi fótum troðin og saklausa íbúa Frakklands og annarra Evrópuríkja sitja undir því að öryggi þeirra sé ógnað, eignir þeirra hrifsaðar af þeim eða brenndar til grunna.“
Í pistlinum líkir Stefán Einar stöðu Frakklands við sögulegar ógnir sem steðjað hafi að Evrópuríkjum og segir Macron hafa brugðist skyldum sínum sem leiðtogi þjóðarinnar.
Hann lætur þó ekki staðar numið við Frakkland heldur segir sömu sjónarmið eiga við um Ísland og önnur Evrópuríki.
„Það þarf að hrinda árásinni og tryggja allsherjarreglu í landinu. Hið sama á við um Ísland og önnur lönd sem hleypt hafa fólki af þessu tagi inn fyrir landamæri sín,“ skrifar Stefán Einar að lokum.