Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum - Vísir

Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum - Vísir

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn í lok marsmánaðar, en atvikið sem málið varðar átti sér stað þann aðfaranótt 19. október í fyrra.

Maðurinn var ákærður og sakfelldur fyrir tilraun til manndráps, en honum var gefið að sök að leggja ítrekað til föður barnsmóður sinnar (sem verður hér eftir kallaður tengdafaðirinn, til einföldunar) með hnífi í höfuð og líkama. Svo virðist sem hnífsblaðið hafi dottið af hnífsskaftinu í átökum mannanna, en tengdafaðirinn fann það á gólfi íbúðar sinnar þegar hann var útskrifaður af bráðamóttökunni.

Taldi ókunnugan árásarmann hafa farið húsavillt

Lögreglu barst tilkynning um málið rétt áður en klukkan sló eitt þessa nótt, en þá hringdi tengdafaðirinn og sagði að maður hefði brotist inn til hans og ráðist á hann meðan hann svaf. Hann sagði árásarmanninn þá farinn af vettvangi.

Þegar lögreglu bar að garði lá tengdafaðirinn alblóðugur og var hann með áverka víðs vegar um líkamann. Hann sagðist hafa vaknað við að sængin hafi verið rifin af honum og ráðist verið á hann, en honum hafi tekist að sparka árásarmanninum frá sér sem hafi hlaupið úr íbúðinni.

Árásarmaðurinn var að hans sögn svartklæddur með grímu fyrir andlitinu. Hann sagðist ekki vita hver það væri, og taldi að hann hafi farið húsavillt.

Síðar var tengdafaðirinn spurður út í grunaðan árásarmann, sem þá hafði verið handtekinn, og var hann grunlaus um að hann gæti verið árásarmaðurinn.

Svartir sokkar yfir skónum og hnífskaftinu

Á leiðinni á vettvang komu lögreglumenn eins lögreglubílsins auga á einstakling á gangi með rafhlaupahjól meðferðis. Sá var með svarta lambhúshettu á höfði, í svartri úlpu, svörtum buxum og í svörtum sokkum utan yfir skóna. Hélt hann á skafti af hníf sem var vafið inn í svartan sokk og á endanum var blóðugur pappír.

Síðar fannst einnig á honum svört eftirlíking af skotvopni sem hann geymdi í buxnastreng sínum.

Í fyrstu neitaði hann að segja á sér deili eða á hvaða ferðalagi hann væri, og var hann í kjölfarið handtekinn.

Ekki ósakhæfur

Geðlæknir var fenginn til að vinna matsgerð á árásarmanninum. Sá taldi að hann sýndi merki vægrar aðsóknarkenndar, en ekki að því marki að um aðsóknarranghugmyndir væri að ræða.

Niðurstaða geðlæknisins var að hann glími ekki við alvarlega geðröskun og að ekkert bendi til þess að hann hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum á verknaðarstundu. Slíkt ástand þarf til svo að menn séu dæmdir ósakhæfir, og átti það því ekki við.

Taldi manninn hafa brotið á syni hans

Fyrir dómi sagðist árásarmaðurinn að hann hafi farið út þetta kvöld til að fá sér frískt loft. Hann hafi allt í einu verið kominn heim til föður barnsmóður sinnar. Aðspurður um hvers vegna svo væri sagðist árásarmaðurinn telja að tengdafaðirinn, og afi sonar hans, hefði misnotað son hans kynferðislega.

Árásarmaðurinn vildi meina að hann hafi ekkert hugsað út í að framkvæma umrædda árás, en að hann hafi framið hana til að gæta hagsmuna sonar síns. Hann hafi einungis ætlað að hóta tengdaföðurnum og viljað að hann myndi gefa sig fram við lögregluna.

Þegar hann hafi verið kominn að heimili tengdaföðurins hafi hann fylgst með honum inn um glugga þar til að ljósin slokknuðu og tengdafaðirinn farið að sofa. Síðan hafi hann farið inn í íbúðina. Um atvikin sjálf inni í íbúðinni sagðist hann muna lítið.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm

Telur árásarmanninn ekki slæman mann

Fyrir dómi sagði tengdafaðirinn að um fjölskylduharmleik væri að ræða. Hann sagðist ekki telja árásarmanninn vera slæman mann, þrátt fyrir að hann ætti forsögu um að beita dóttur sína andlegu og líkamlegu ofbeldi.

Önnur vitni, líkt og vinir og fjölskyldumeðlimir mannsins, sögðu sum hver að hann hefði glímt við ranghugmyndir í aðdraganda árásarinnar.

Til að mynda sagði barnsmóðir hans, og dóttir brotaþolans, að hann hefði verið í ójafnvægi. Þau hefðu hist skömmu fyrir umrætt kvöld og hann viljað giftast henni svo hann gæti verið lengur á landinu, en þau höfðu hætt saman nokkrum árum áður. Á endanum hafi hann tekið hana hálstaki og þvingað hana til að kyssa sig. Svo virðist sem sonur þeirra hafi verið í bílnum og honum verið brugðið.

Ætti að vera ljóst að bani gæti hlotist af

Að mati dómsins er ljóst að árásarmaðurinn hélt til tengdaföðurins umrætt kvöld til að valda honum líkamlegum skaða. Honum hafi til dæmis ekki tekist að skýra sérstakan klæðaburð sinn og þá staðreynd að hann var vopnaður þessa nótt.

Þó segir í dómnum að ósannað sé að maðurinn hafi verið búinn að gera upp við sig hvort hann ætlaði að bana tengdaföðurnum eða ekki. Hann hafi þrátt fyrir það ráðist að honum með slíkum hætti að honum hefði átt að vera ljóst að bani gæti hlotist af. Hins vegar hafi hann látið afleiðingarnar sér í léttu rúmi liggja.

Líkt og áður segir hlaut maðurinn fimm ára fangelsisdóm, en gæsluvarðhald verður dregið frá refsingunni. Þá voru fíkniefni og vopn mannsins gerð upptæk.

Honum er gert að greiða tengdaföðurnum 2,5 milljónir króna og rúmar sjö milljónir í sakarkostnað.

#hann #mann #sem #sofandi #stakk


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262877572d/stakk-sofandi-mann-sem-hann-taldi-hafa-brotid-a-syni-sinum

📰 Aðrar fréttir

Telja íslensku mjólkina leiða til minni meltingartruflana en önnur mjólk
📅 01.01.1970 👁️ 0

Telja íslensku mjólkina leiða til minni meltingartruflana en önnur mjólk

Margt bendir til að íslenska mjólkin innihaldi hærra hlutfall sértaks prótíns en önnur mjólk sem gerir hana þar með heilsusamlegri. Hópur vísindamanna...
Kerlingartal Þorgerðar Katrínar vekur furðu Morgunblaðsins
📅 01.01.1970 👁️ 0

Kerlingartal Þorgerðar Katrínar vekur furðu Morgunblaðsins

Kerlingartal Þorgerðar Katrínar vekur furðu Morgunblaðsins ForsíðaFréttir Tweet Utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sat fyrir svörum ut...
Styrkur ullarinnar kom á óvart
📅 01.01.1970 👁️ 0

Styrkur ullarinnar kom á óvart

Styrkur ullarinnar kom á óvart „Ég bý á Hornafirði og ég vinn mikið með leir og það varð vesen með birgðir í Covid, var löng bið eftir þeim. Ég var að...
Ný íslensk gervigreind sem aðstoðar við innleiðingu Evrópulöggjafar
📅 01.01.1970 👁️ 0

Ný íslensk gervigreind sem aðstoðar við innleiðingu Evrópulöggjafar

Ný íslensk gervigreindarlausn, Treyst.ai, sem hefur það að markmiði að vakta lagabreytingar og einfalda innleiðingu ESB- og EES-löggjafar á Íslandi he...
Man and woman die and three injured in Bristol house blast
📅 01.01.1970 👁️ 0

Man and woman die and three injured in Bristol house blast

Man and woman die and three injured in house blast60 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleBeth CruseandAndrew Segal,West of EnglandPAA police...
South African police officer lowered into crocodile-infested river to recover human remains
📅 01.01.1970 👁️ 1

South African police officer lowered into crocodile-infested river to recover human remains

Police officer lowered into crocodile-infested river to recover human remains23 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleJoseph WinterThe police ...
Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu - DV

„Ég sagði ykkur frá því fyrr í vikunni að ég væri að undirbúa mig undir annars konar gigg en ég er vön og nú er það komið í ljós“, segir söngkonan og ...
Leita að húsnæði undir heimavist á Selfossi
📅 01.01.1970 👁️ 1

Leita að húsnæði undir heimavist á Selfossi

Um þúsund nemendur eru í Fjölbrautaskóla Suðurlands en þeir koma af öllu Suðurlandi og þeir sem búa lengst frá skólanum eru oft á heimavist. Núverandi...
Bank holiday weather: Mild and mostly dry but heavy showers possible for some
📅 01.01.1970 👁️ 0

Bank holiday weather: Mild and mostly dry but heavy showers possible for some

Mild and mostly dry bank holiday but heavy showers possible for some1 hour agoShareSaveAdd as preferred on GoogleCachella SmithandStav Danaos,lead wea...
Óska eftir upplýsingum um Háskólann á Bifröst
📅 01.01.1970 👁️ 1

Óska eftir upplýsingum um Háskólann á Bifröst

Ríkisendurskoðun hefur sent fyrirspurn á menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti um málefni Háskólans á Bifröst. „Við höfum sent ráðuneytinu fyrir...
Sinueldur á Kjalar­nesi - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Sinueldur á Kjalar­nesi - Vísir

„Ég held að þeir séu um það bil að klára þetta,“ segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einungis þurfti að senda...
„Þitt vanda­mál er að þú skilur ekki stéttar­fé­lög“ - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

„Þitt vanda­mál er að þú skilur ekki stéttar­fé­lög“ - Vísir

Orð Björns Brynjúlfs Björnssonar framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs um verkalýðsfélög hafa fallið í grýttan jarðveg hjá fulltrúum félaganna. Björn var með...
Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks - DV

Hinn 24. janúar 2024 var stytta af einum dáðasta Íslendingi síðustu aldar felld af stalli sínum á horni Lækjargötu og Amtmannsstígs þar sem hún hafði ...
Gervigreindin gæti haft á­hrif á ESB-atkvæðagreiðsluna - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Gervigreindin gæti haft á­hrif á ESB-atkvæðagreiðsluna - Vísir

Þetta var á meðal þess sem hann minntist á í viðtali um gervigreind í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. „Ég held að það sé mjög vert að staldra aðeins v...
Man Utd: Sir Alex Ferguson taken to hospital as a precaution
📅 01.01.1970 👁️ 0

Man Utd: Sir Alex Ferguson taken to hospital as a precaution

Ferguson taken to hospital as precaution before Man Utd v LiverpoolImage source, Getty ImagesImage caption, Ferguson managed Manchester United from 19...
Police probe link between Brixton drive-by shooting and stabbing
📅 01.01.1970 👁️ 1

Police probe link between Brixton drive-by shooting and stabbing

Police probe link between drive-by shooting and stabbing1 hour agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRosemary McCabeLondonRory Bibb/BBCThe site target...
Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar - DV

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er virk á Facebook og birtir oft myndir úr safni sínu frá síðustu árum og áratugum. Svo var einnig á laugardag þegar þe...
Staðan enn góð hjá málurum en blikur á lofti fyrir haustið
📅 01.01.1970 👁️ 1

Staðan enn góð hjá málurum en blikur á lofti fyrir haustið

Formaður Málarameistarafélagsins telur stöðu greinarinnar góða eins og er en að blikur séu á lofti eftir sumarið. Formaður félags pípulagningameistara...
Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar - DV

Leigusamningar geta verið tímabundnir eða ótímabundnir, þ.e. gerðir til ákveðins tíma eða ekki. Í síðasta pistli fjallaði ég um uppsögn ótímabundinna ...
Guðleg forsjón
📅 01.01.1970 👁️ 1

Guðleg forsjón

Guðleg forsjón Það var að áliðnu kvöldi fyrir skömmu að Donald Trump var að fikta við eitthvað gervigreindarforritið …  ég hef svosem ekki hugmynd um ...
Russian strikes kill 10 as Zelensky says Ukraine hits oil tankers
📅 01.01.1970 👁️ 1

Russian strikes kill 10 as Zelensky says Ukraine hits oil tankers

Russian strikes kill 10 as Zelensky says Ukraine hits oil tankers and terminal2 hours agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRobert GreenallBBC NewsReu...
„Mjög sterk öfl alltaf tilbúin til þess að reyna að kroppa í öll áunnin réttindi“
📅 01.01.1970 👁️ 1

„Mjög sterk öfl alltaf tilbúin til þess að reyna að kroppa í öll áunnin réttindi“

„Fólk áttar sig á því að það sem áunnist hefur er fljótt að glutrast niður ef við erum ekki í varðstöðu til að verja það áfram. Það eru mjög sterk öfl...
„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“ - DV
📅 01.01.1970 👁️ 0

„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“ - DV

„Það er mikilvægt að átta sig á því að útlendingar sem flytja til Íslands, langflestir eru komnir hingað til að vinna og bæta sitt líf. Rífa sig upp f...
Brott­hvarf banda­rískra her­manna veiki ekki NATO í Evrópu - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Brott­hvarf banda­rískra her­manna veiki ekki NATO í Evrópu - Vísir

Donald Trump tilkynnti fyrir helgi að þúsundir hermanna Bandaríkjanna í Þýskalandi yrðu kallaðir heim. Þetta var eftir að Friedrich Merz kanslari Þýsk...
Hefur þú gert mistök? - Ragnhildur er með ráð við því - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Hefur þú gert mistök? - Ragnhildur er með ráð við því - DV

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar....
Eftir­lit lög­reglu og utan­ríkis­ráð­herra um breytingar á her­afla í Þýska­landi - Vísir
Jón Pétur biðst afsökunar en ekki Þórunn þingforseti
📅 01.01.1970 👁️ 0

Jón Pétur biðst afsökunar en ekki Þórunn þingforseti

Jón Pétur biðst afsökunar en ekki Þórunn þingforseti ForsíðaFréttir Tweet Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokk...
Two dead and major incident declared after Frenchay explosion
📅 01.01.1970 👁️ 1

Two dead and major incident declared after Frenchay explosion

Two dead and major incident declared after explosion13 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleBeth CruseandAndrew Segal,West of EnglandBBCEmerg...
„Þessi munur er sláandi“
📅 01.01.1970 👁️ 1

„Þessi munur er sláandi“

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, segir verðmun á loðnu á Íslandi og í Færeyjum sláandi. Í svari ráðherra við fyrirspurn Eydísar Ásbjörns...
Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“ - DV
📅 01.01.1970 👁️ 0

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“ - DV

Ingibjörg Dögg Kristinsdóttir lést í kajakslysi í Skorradalsvatni síðastliðinn miðvikudag, 44 ára að aldri. Inga, eins og hún var kölluð, skilur eftir...
Zack Polanski says police 'should not be above scrutiny' over Golders Green response
📅 01.01.1970 👁️ 1

Zack Polanski says police 'should not be above scrutiny' over Golders Green response

Polanski says police 'should not be above scrutiny' over Golders Green response2 hours agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRichard WheelerPolitical ...
Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá
📅 01.01.1970 👁️ 0

Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá

Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá Mynd: KinoMasterskaya/Shutterstock Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá en eiginmaður hennar, Vésteinn Valgar...
Inga Dögg lést á Skorra­dals­vatni - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Inga Dögg lést á Skorra­dals­vatni - Vísir

Eiginmaður hennar, Vésteinn Valgarðsson, greinir frá þessu í færslu á Facebook. „Inga varð 44 ára. Ástin í lífi mínu, lífsförunauturinn minn. Ég fékk ...
Vilja slaka á kröfum um endurnýjun ökuréttinda eldri borgara
📅 01.01.1970 👁️ 1

Vilja slaka á kröfum um endurnýjun ökuréttinda eldri borgara

Ökumenn 65 ára og eldri þurfa að endurnýja ökuréttindin á eins til fimm ára fresti - og árlega eftir áttrætt. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður ...
Two killed and major incident declared after Frenchay explosion
📅 01.01.1970 👁️ 1

Two killed and major incident declared after Frenchay explosion

Two killed and major incident declared after explosion13 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleBBCPolice and paramedics are among emergency se...
Engar handtökur í samkvæmi Hells Angels
📅 01.01.1970 👁️ 5

Engar handtökur í samkvæmi Hells Angels

Enginn var handtekinn þegar lögregla fylgdist með samkomu í félagsheimili Vítisengla í Auðbrekku í Kópavogi frá því fyrir klukkan sex í gær. Samkvæmt ...
Lögðu hald á eggvopn og fíkni­efni en hand­tóku engan - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Lögðu hald á eggvopn og fíkni­efni en hand­tóku engan - Vísir

„Við höfðum fregnir af samkomu í aðsetri þeirra í Auðbrekku í Kópavogi og það var sett upp ákveðið aðgerðaskipulag sem við höfum viðhaft áður í samkom...
Ragnar Þór Ingólfsson: Framganga stjórnarandstöðunnar með hreinum ólíkindum - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Ragnar Þór Ingólfsson: Framganga stjórnarandstöðunnar með hreinum ólíkindum - DV

Stjórnarandstaðan leggst þvert gegn öllum málum sem ríkisstjórnin kemur með inn í þingið, stundar jafnvel málþóf og tafir við afgreiðslu mála sem full...
Zack Polanski stands by concerns over police response to Golders Green attack
📅 01.01.1970 👁️ 1

Zack Polanski stands by concerns over police response to Golders Green attack

Polanski stands by concerns over police response to Golders Green attack45 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRichard WheelerPolitical repo...
Verka­lýðs­fé­lög, gervi­greind og Landeyjahöfn í Sprengi­sandi - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Verka­lýðs­fé­lög, gervi­greind og Landeyjahöfn í Sprengi­sandi - Vísir

Fyrstur verður Hafsteinn Einarsson til að ræða gervigreind. Umræðan um Mythos gervigreindarlíkan Anthropic fyrirtækisins var engu lík, líkanið var tek...
Náttúruafl og aðgerðasinni í heila öld
📅 01.01.1970 👁️ 1

Náttúruafl og aðgerðasinni í heila öld

Hann hefur farið með okkur niður á hafsbotn, að kjarna jarðar, inn í myrka frumskóga og upp í hæstu trjákrónur. Leitt okkur að náttúrunni í öllum sínu...
Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans? - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans? - DV

Minnihlutaflokkarnir á Alþingi, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn, eru líklegir til að vilja vinna saman nái þeir meirihluta í komandi borgar...
Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef - DV

Framboð Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi kynnti í gær stefnuskrá sína og helstu áherslumál fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. ...
Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu - DV
📅 01.01.1970 👁️ 1

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu - DV

Níu íslensk frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu hafa hlotið styrki frá Uppsprettunni, nýsköpunarsjóði Haga, til að vinna að nýsköpun í matvælaiðna...
Erlendir aðgerðarsinnar koma fyrir ísraelska dómstóla
📅 01.01.1970 👁️ 0

Erlendir aðgerðarsinnar koma fyrir ísraelska dómstóla

Tveir aðgerðarsinnar, sem reyndu að sigla með hjálpargögn á Gaza-svæðið, koma fyrir ísraelskan dóm í dag. Þeir eru frá Spáni og Brasilíu og voru flutt...
Eigendur Sóltúns handteknir
📅 01.01.1970 👁️ 2

Eigendur Sóltúns handteknir

Eigendur Sóltúns handteknir Hjúkrunarheimilið Sóltún Mynd: Sóltún Í fyrra samþykkti embætti Skattsins beiðni eigenda Öldungs hf., móðurfélags hjúkruna...
Germany troop cuts send wrong signal to Russia, say two top US Republicans
📅 01.01.1970 👁️ 0

Germany troop cuts send wrong signal to Russia, say two top US Republicans

Germany troop cuts send wrong signal to Russia, say two top US Republicans28 minutes agoShareSaveAdd as preferred on GoogleRobert GreenallBBC NewsGett...
Úti­lokar ekki frekari hernaðar­að­gerðir eða að fleiri her­menn fari heim - Vísir
📅 01.01.1970 👁️ 1

Úti­lokar ekki frekari hernaðar­að­gerðir eða að fleiri her­menn fari heim - Vísir

Í frétt Guardian um málið segir að Íranir segi boltann hjá Trump og að ólíklegt sé að hann samþykki nýjustu tillöguna um frið. Í fréttinni segir að ti...
Ókennilegt flygildi yfir Finnlandi
📅 01.01.1970 👁️ 1

Ókennilegt flygildi yfir Finnlandi

Finnski flugherinn varð í rauðabítið var við að ókennilegt flygildi sveimaði innan lofthelginnar yfir Virolahti nærri landamærunum að Rússlandi. Í yfi...
Norðanátt og stöku él
📅 01.01.1970 👁️ 1

Norðanátt og stöku él

Fremur hæg norðanátt verður ráðandi í dag með stöku éljum og hita í kringum frostmark á Norðaustur- og Austurlandi. Um landið vestanvert verður hitinn...