Framkvæmdastjóri Herjólfs segir Eyjamenn langþreytta á röskun á siglingum til og frá Vestmannaeyjum undanfarna mánuði. Tryggja verði að truflanir sem þessar endurtaki sig ekki.
Lítið hefur verið hægt að sigla til og frá Landeyjahöfn það sem af er ári vegna sandburðar og krefjandi skilyrða. Þar að auki bilaði annar rafmótor Herjólfs fyrir einum og hálfum mánuði síðan og var hann sendur í viðgerð erlendis. Gert er ráð fyrir að viðgerðinni ljúki um miðjan júní.
Segir ástandið hafa reynt verulega á Vestmanneyinga
Í færslu sem birtist á Facebook-síðu Herjólfs í dag segir að undanfarna daga og vikur hafi gefist góðir dýpkunargluggar. Enn sé þó talsverður tími í að fullu dýpi verði náð.
„Staðan er þannig núna að í dag og næstu daga siglir Herjólfur í Landeyjahöfn og það eru bara góð skilyrði til þess. Svo vonum við að um eða upp úr mánaðamótum munum við vita betur hvenær rafmótorinn kemur úr viðgerð og hvernig hlutirnir leggjast upp,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs.
Ólafur bindur vonir við að staða mála skýrist á næstu dögum. Hann segir vorið hafa verið erfitt og ástandið reynt mikið á Vestmannaeyinga. Þá sé brýnt að fyrirbyggja að staða sem þessi endurtaki sig.
„Ég get bara talað fyrir hönd okkar allra sem hér búum, allra þeirra sem þurfa að treysta á skipið, að þetta er ástand sem er búið að taka verulega á og má aldrei gerast aftur,“ segir Ólafur.
„Þess vegna verður það að gerast að svona mótor eins og sá sem bilaður er sé til í landinu. Því að það tekur níu mánuði að fá svona mótor keyptan og þess vegna verður það að gerast sem allra allra fyrst að svona mótor verði til sem varahlutur í landinu.“