„Á tímum þar sem upplýsingaóreiða og hálfsannleikur veður uppi í gegnum samfélagsmiðla þá er þetta auðvitað mjög sorglegt og leiðinlegt að horfa upp á að það sé núna ekki samkeppni á sjónvarpsfréttamarkaðnum.“
Þetta segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, um þær fregnir að Sýn hafi ákveðið að hætta með fréttatíma í sjónvarpi. Hann segir þetta dapurlegt en þörfin fyrir áreiðanlega og ritstýrða fjölmiðla hafi aldrei verið meiri.
Logi segir greinilegt að staðan á fjölmiðlamarkaði sé bæði viðkvæm og erfið. „Þetta er auðvitað búið að blasa við í mjög langan tíma“
Hann segir að íslenski markaðurinn sé smár en hann glími einnig við erfiðar alþjóðlegar áskoranir sem stærri ríki eiga einnig við.
Logi segir að það hafi verið sett í forgang þegar hann tók við ráðuneyti sínu að leggja fram aðgerðaráætlun til að styðja við fjölmiðla. Hann segir að það þurfi að leggja áherslu á að hrinda henni í framkvæmd og efla vitund fólks um mikilvægi fjölmiðla.
Inntur eftir því hvort núgildandi ráðstafanir dugi til að styðja við fjölmiðlun í landinu segir Logi að hann telji að fleira þurfi að koma til. „Við erum opin fyrir hugmyndum og munum áfram vinna að þessu.“