Þetta er meðal þess sem fram kemur á vef Veðurstofunnar en þar segir einnig að breytileg eða vestlæg átt verði á landinu öllu fram eftir degi. Á morgun mun rigna um suðvestanvert landið en þurrt á austanverðu landinu fram eftir degi.
Loks á mánudag fer svo að rofa til og er útlit fyrir að það verði aðeins minna þungbúið en í dag og á morgun. Það bætir í suðvestanáttina og styttir upp allvíða þegar kemur fram á daginn.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Hæg suðlæg átt og súld eða rigning. Þurrt norðaustan- og austanlands, en svolítil rigning þar undir kvöld. Hiti 2 til 7 stig.
Á mánudag:
Suðvestan og vestan 5-13 og dálítil væta á köflum, en rofar allvíða til síðdegis. Hiti 6 til 12 stig.
Á þriðjudag:
Snýst í norðan 8-13 m/s. Víða rigning eða slydda af og til, en yfirleitt þurrt á sunnanverðu landinu. Hiti 2 til 11 stig, mildast syðst.
Á miðvikudag:
Minnkandi norðlæg og síðar vestlæg átt. Víða þurrt og bjart veður, en lítilsháttar rigning eða slydda norðaustantil á landinu fram eftir degi. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag (uppstigningardagur):
Sunnanátt og rigning, talsverð úrkoma um landið sunnanvert. Hiti 3 til 8 stig.
Á föstudag:
Suðvestanátt og skúrir eða rigning, en bjartviðri norðaustanlands. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast norðaustantil.