Greiningardeild Íslandsbanka telur að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um 0,25 prósentustig á miðvikudag eftir viku. Þeir yrðu þá 8%.
Á síðustu árum hafa stýrivextir staðið hæst í 9%. Þeir fóru lækkandi á síðari hluta árs 2024, voru komnir í 8% í febrúar í fyrra og fóru lægst í 7,25% í nóvember. Seðlabankinn hóf að hækka vexti aftur á fyrri hluta þessa árs og þeir standa nú í 7,75%.
Meiri hækkun líklegri en engin breyting
„Þrálát verðbólga, of háar verðbólguvæntingar og aukin óvissa um launaþróun á næstu misserum vegna endurskoðunarákvæðis í kjarasamningum munu þar vega þyngra en skýr merki um kólnandi vinnumarkað, betra jafnvægi á íbúðamarkaði og vaxandi slaka í hagkerfinu,“ segir í tilkynningu á vef Íslandsbanka.
Greiningardeild bankans telur líklegra að vextir verði hækkaðir enn meira á miðvikudag en að þeim verði haldið óbreyttum.
„Ákvörðun um óbreytta vexti nú eftir samfellda verðbólgu yfir 5% allt frá áramótum, útlit fyrir svipaða verðbólgu út þetta ár og viðvarandi háar verðbólguvæntingar væri einfaldlega ekki heppileg fyrir trúverðugleika verðbólgumarkmiðsins.“
Allar líkur á að forsenduákvæði kjarasamninga virkist
Líkt og áður segir hefur verðbólga verið þrálát á árinu. Í síðasta mánuði mældist ársverðbólga 5,3% og allar líkur eru á að ágústmælingin verði yfir 4,7% forsenduákvæði kjarasamninga. Ákvæðið kveður á um að hægt sé að segja upp samningum ef verðbólgan er yfir þessu marki.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði við fréttastofu í gær að hún vildi að Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands næðu saman um hvaða aðgerðir þau vilji af hálfu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Ekki væri endalaust hægt að leysa kjarasamninga með stórum ófjármögnuðum aðgerðapökkum.