Sóltúnsmálið: Hafa greitt sér rúma þrjá milljarða úr móðurfélagi hjúkrunarheimilisins

Sóltúnsmálið: Hafa greitt sér rúma þrjá milljarða úr móðurfélagi hjúkrunarheimilisins

Sóltúnsmálið: Hafa greitt sér rúma þrjá milljarða úr móðurfélagi hjúkrunarheimilisins

Í lok nóvember í fyrra samþykkti embætti Skattsins að heimila eigendum fyrirtækisins Öldungs hf., sem er móðurfélag hjúkrunarheimilisins Sóltúns í Reykjavík að lækka hlutafé þess og greiða tæplega 1,2 milljarða króna út til hluthafanna. Eigendur fyrirtækja geta gert þetta ef fjárhags- og skuldastaða þess er það góð að fyrirtækið geti lækkað hlutafé sitt með útgreiðslu á peningum til hluthafa.

Eigendur Öldungs eru þeir Arnar Þórisson og Þórir Kjartansson sem eiga 45 prósent hvor og Anna Birna Jensdóttir sem lengi var forstjóri Sóltúns. Þessi aðferð er stundum notuð til að taka peninga út úr fyrirtækjum án þess að greiða út arð. Tekið skal fram að þessi aðferð er fullkomlega lögleg og verður Skatturinn að samþykkja útgreiðsluna.

Hjúkrunarheimilið Sóltún og rekstrarfélag þess, Öldungur hf., hafa verið til umfjöllunar vegna rannsóknar sem nú stendur yfir sem byggir á kæru frá fyrrverandi eiganda hjúkrunarheimilisins. Hann heitir Jóhann Óli Guðmundsson. Jóhann Óli kærði tvo aðaleigendur Sóltúns til lögreglunnar í ársbyrjun vegna meintra vanefnda á meintum kaupsamningi sem hann segist hafa gert við þá Arnar Þórisson og Þóri Kjartansson árið 2009.

Í kæru Jóhanns Óla er því haldið fram að Arnar og Þórir hafi ekki greitt honum meint tveggja milljarða króna kaupverð fyrir Sóltún sem þeir, að hans sögn, gerðu samning um. Samkvæmt því sem staðhæft er í kærunni greiddu þeir Arnar og Þórir, eða fyrirtæki í þeirra eigu, ekkert fyrir hjúkrunarheimilið.

Lögmaður Þóris, Eva Bryndís Helgadóttir, hefur sagt við fréttastofu að kæran sé tilhæfulaus og að hún verði vonandi felld niður sem fyrst.

En hvaða máli skiptir útgreiðsla eigenda Sóltúns á hlutafé upp á tæpar 1200 milljónir króna í þessu samhengi? Eitt af því sem kemur fram í þessari kæru sem nú er til meðferðar hjá lögreglunni er að eigendur Sóltúns hafi hagnast ævintýralega á rekstri þess á sama tíma og fyrri eigandi telur sig hafa verið hlunnfarinn í viðskiptunum með hjúkrunarheimilið.

3,2 milljarðar greiddir út úr félaginu

Þessi útgreiðsla upp á 1,2 milljarða króna út úr Öldungi í fyrra bætist við 2 milljarða króna greiðslu til hluthafa Öldungs árið 2021. Þessi greiðsla var innt af hendi með sama hætti og greiðslan nú í nóvember. Hlutafé félagsins var lækkað og embætti Skattsins skrifaði upp á að útgreiðslan væri heimil þar sem skuldastaða Öldungs stæði ekki í veginum fyrir því.

Þessi útgreiðsla út úr Öldungi kom í kjölfar þess að eigendur Sóltúns seldu fasteignina sem hýsir rekstur hjúkrunarheimilisins til fasteignafélagsins Regins sem í dag heitir Heimar. Kaupverðið var 3,8 milljarðar króna. Fasteignin var langverðmætasta eign Sóltúns þegar fyrirtækið skipti um hendur árið 2009. Í dag leigir Öldungur hf. fasteignina í Sóltúni af Heimum.

Samtals nema þessar tvær greiðslur út úr Öldungi til hluthafanna því að minnsta kosti samtals tæplega 3,2 milljörðum króna.

Fjallað er um þessi atriði i viðskiptasögu Sóltúns og Öldungs, í samhengi við áðurnefnda kæru, í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér.

Hafa líka selt lóðir á Sóltúnsreitnum

Við þessa 3,2 milljarða útgreiðslu hlutafjár bætist að eigendur Öldungs hafa sömuleiðis selt lóðir á Sóltúnsreitnum og tekið hagnaðinn út að hluta með útgreiðslu til hluthafa. Þetta gerðist til dæmis árið 2023, líkt og fjallað var um í Heimildinni fyrir tveimur árum, þegar félag í eigu eigenda Öldungs seldi lóð á Sóltúnsreitnum fyrir 1300 milljónir króna. 280 milljónir voru í kjölfarið greiddar út til hluthafa með sama hætti og lýst er hér að framan.

Samtals nema þessar útgreiðslur til hluthafa Öldungs og tengdra félaga því tæplega 3,5 milljörðum króna á síðustu árum. Þessar útgreiðslur byggja að langmestu leyti á sölu hjúkrunarheimilisins sjálfs, fasteignarinnar.

Tekjurnar nær alfarið frá íslenska ríkinu

En það er annað inni í Öldungi sem var verðmætara en bara fasteignin þegar fyrirtækið skipti um hendur árið 2009 og enn þann dag í dag. Þetta er þjónustusamningurinn við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur starfseminnar. Rekstur Sóltúns hjúkrunarheimilis byggir nær alfarið á þessum samningi við íslenska ríkið, eins og raunar segir í ársreikningi félagsins ár hvert. Þar stendur: „Öldungur hf. rekur hjúkrunarheimilið Sóltún samkvæmt þjónustusamningi við ríkið og byggir rekstur félagsins á daggjöldum og öðrum framlögum frá Sjúkratryggingum Íslands.”

Þessi þjónustusamningur var upphaflega til 25 ára, frá árinu 2000 til 2025, og var endurnýjaður þá. Rekstrartekjur Öldungs námu rúmlega 2,5 milljörðum árið 2024 og hagnaðist fyrirtækið um 8,5 milljónir króna það ár en var tæplega 214 milljónir árið á undan. Þessi samningur tryggir Öldungi því vel á þriðja milljarð króna í tekjur á hverju ári í dag.

Þegar fyrirtækið skipti um hendur árið 2009 voru rekstrartekjur Öldungs rúmur milljarður króna, að langmestu leyti peningar frá íslenska ríkinu.

Síðastliðin 25 ár hefur íslenska ríkið greitt um 25 milljarða króna til Sóltúns fyrir þjónustu þess og á hjúkrunarheimilinu hafa mörg hundruð eldri borgararar búið á þessum tíma.

Allar þessar upplýsingar sýna hversu öflugt fyrirtæki Öldungur og Sóltún hjúkrunarheimili eru. Hvernig stendur þá á því að ekki liggur fyrir hversu mikið núverandi eigendur Sóltúns greiddu fyrir þetta stönduga fyrirtæki? Þeir hafa ekki viljað gefa þetta upp og verðið kemur ekki fram í ársreikningum þeirra félaga sem stóðu að viðskiptunum.

Í viðtali við Heimildina fyrir tveimur árum sagði Þórir Kjartansson orðrétt um kaupin á Sóltúni. „Um hefðbundin viðskipti var að ræða þar sem eigandi fyrirtækis leitaði að kaupanda. Við ákváðum að fjárfesta í þessum rekstri í ljósi þess góða árangurs sem stjórnendur og starfsfólk Sóltúns hafði náð en heimilið var þá þegar orðið eftirsóttasta hjúkrunarheimili landsins. Eðli viðskiptanna var bara eins og slík viðskipti fara fram að hlutabréf í félaginu skiptu um hendur og það varð opinbert beint í kjölfarið.“

Forstjóri hjúkrunarheimilisins Sóltúns, Halla Thoroddsen, sagði í sömu grein að kaupverð fyrirtækisins væri trúnaðarmál.

Kaupverðið alfarið greitt með yfirtöku skulda

Einn möguleiki er sá að kaupverðið hafi alfarið verið greitt með yfirtöku skulda Öldungs hf. Núverandi eigendur Öldungs og Sóltúns hafa hins vegar ekki sagt þetta berum orðum í svörum til fjölmiðla í gegnum árin.

Í árslok 2008 var eigið fé Öldungs – eignir mínus skuldir – neikvætt um rúmlega 168 milljónir króna. Félagið átti rúmlega 1700 milljóna króna eignir en skuldaði tæpar 1900 milljónir. Hagnaður upp á 34 milljónir var samt á rekstrinum á þessu hrunári.

Þessi tilgáta um skuldsettu yfirtökuna byggir á því að staða Öldungs hafi á þessum tíma verið svo slæm að Jóhann Óli Guðmundsson og fyrirtæki hans, Frumafl, hafi orðið að gefa Sóltún frá sér án endurgjalds.

Í ársreikningi fyrirtækis þeirra Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar sem eignaðist Öldung árið 2009 kemur fram að fjárfesting þeirra í Öldungi árið 2009 hafi numið 3,6 milljónum króna. Þar kemur líka fram að nafnverðið á hlutabréfunum í Öldungi hafi numið 3,6 milljónum króna. Í þessum ársreikningi kemur líka fram að virðið á eignarhlutanum í Öldungi hafi verið endurmetið upp á 312 milljónir króna.

Segist hafa fengið meint kauptilboð

Í kærunni frá Jóhanni Óla vegna þessara viðskipta kemur fram að hann segist hafa fengið kauptilboð í Öldung og Sóltún upp á tvo til tvo og hálfan milljarð króna á árunum 2006 til 2007. Þessi tilboð voru óformleg og komu frá tryggingafélögunum Sjóvá og VÍS. Lögmaður Jóhanns Óla segir í kærunni að honum hafi þótt þessi tilboð í Öldung og Sóltún vera of lág og að þess vegna hafi hann ekki viljað taka þessum tilboðum í móðurfélag Sóltúns.

Kæruna má því skilja sem svo að Jóhann Óli sé að segja að hann hefði aldrei samþykkt að láta Öldung og Sóltún af hendi án endurgjalds og eingöngu með yfirtöku kaupenda fyrirtækisins á skuldum. Þess vegna vill hann meina að skýringin á málinu liggi í því að hann hafi átt að fá meinta greiðslu upp á tvo milljarða króna fyrir Sóltún auk þess sem skuldir félagsins hafi átt að vera yfirteknar. Jóhann Óli vill meina að Arnar og Þórir hafi aldrei efnt þennan samning.

Lögreglurannsóknin á þessum meintu viðskiptum með Sóltún stendur nú yfir og liggur á þessari stundu ekki ljóst fyrir hvað kemur út úr henni. Skýrslutökur hafa farið fram og Alda Hrönn Jóhannsdóttir, staðgengill lögreglustjórans á Suðurnesjum, hefur sagt að rannsóknin standi yfir.

Hugsanlegt er að ein af niðurstöðum þessarar rannsóknar verði að endanlega verði upplýst hvernig viðskiptin með hjúkrunarheimilið Sóltún gengu fyrir sig og hver það er sem er að segja satt. Átti Jóhann Óli Guðmundsson að fá greidda tvo milljarða króna fyrir Sóltún eða var kaupverðið eingöngu greitt með yfirtöku skulda, líkt og ýmislegt bendir til að núverandi eigendur Sóltúns telji að sé rétt.

Hvað sem líður ólíkum sögum um þetta þá liggur fyrir að núverandi eigendur Sóltúns hafa hagnast ævintýralega á þessum viðskiptum með hjúkrunarheimilið og þeir halda áfram að reka heimilið með góðum árangri og traustu tekjustreymi frá ríkinu jafnvel þó að þeir hafi selt fasteignina frá sér.

Fyrri þátt Þetta helst um Sóltúnsmálið má hlusta á hér:

#greitt #hafa #rúma #sér #sóltúnsmálið


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-03-soltunsmalid-hafa-greitt-ser-ruma-thrja-milljarda-ur-modurfelagi-hjukrunarheimilisins-474151

📰 Aðrar fréttir

H5-afbrigði fuglaflensu greint í fyrsta sinn
📅 20.06.2026 👁️ 0
H5-afbrigði fuglaflensu greint í fyrsta sinn
Vísindamenn hafa greint fyrsta tilfellið af fuglaflensu, af H5-afbrigði, í Ástralíu í fyrsta sinn. Þessi bráðsmitandi veira hefur nú greinst í öllum h...
Sjóherinn gerði 6 tonn af kókaíni upptæk
📅 20.06.2026 👁️ 0
Sjóherinn gerði 6 tonn af kókaíni upptæk
Sjóherinn í El Salvador gerði rúmlega sex tonn af kókaíni upptæk sem verið var að smygla í tveimur skipum á Kyrrahafi í fyrradag. Heildarverðmæti fíkn...
Scotland fans dejected after loss to Morocco at World Cup
📅 20.06.2026 👁️ 1
Scotland fans dejected after loss to Morocco at World Cup
Scotland fans at home and in the US are dejected after losing a crucial World Cup match against Morocco in Boston.After defeating Haiti 1-0 last Satur...
Taking supplements every day? You might be doing more harm than good
📅 20.06.2026 👁️ 1
Taking supplements every day? You might be doing more harm than good
I did not see myself as an avid supplement taker, but then I took a good look in my cupboard. Without realising it, I had accumulated several pouches ...
Driver dies and 33 passengers seriously injured in Bedford train collision
📅 20.06.2026 👁️ 0
Driver dies and 33 passengers seriously injured in Bedford train collision
A train driver has died and 89 people have been injured after two trains collided in the Bedford area as police declare a major incident.Eleven people...
How to stay safe in the water this summer, while still having fun
📅 20.06.2026 👁️ 1
How to stay safe in the water this summer, while still having fun
When temperatures rise, outdoor swimming can be a fun and often free day out - but it is not without risk. During last month's hot weather, at least 1...
Jóhann Páll: Vindmyllurnar munu bara rísa á „örfáum afmörkuðum svæðum“
📅 20.06.2026 👁️ 1
Jóhann Páll: Vindmyllurnar munu bara rísa á „örfáum afmörkuðum svæðum“
Vindorkuver munu einvörðungu rísa á örfáum afmörkuðum svæðum í sátt við nærsamfélagið segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðh...
What type of World Cup fan are you?
📅 19.06.2026 👁️ 0
What type of World Cup fan are you?
The 2026 men's World Cup is under way with excited football fans cheering on their teams. But what type of fan are you - a die-hard enthusiast analysi...
Why political candidates dress up and run in major UK elections
📅 19.06.2026 👁️ 1
Why political candidates dress up and run in major UK elections
Andy Burnham - a man who hopes to be the next prime minister - stood shoulder-to-shoulder with a man in a fox costume and an "intergalactic space warr...
UK weather: Brief relief on Saturday before 35C heat returns
📅 19.06.2026 👁️ 2
UK weather: Brief relief on Saturday before 35C heat returns
After a slightly cooler Saturday, temperatures will rise again, possibly touching 35C by Tuesday with a Met Office amber extreme heat warning set to c...
Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 2
Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo - Vísir
Viðbragðsaðilar voru ræstir út að Molde í vestanverðum Noregi í kvöld vegna tilkynningar um vinnuslys. „Tveir eru slasaðir, annar er í alvarlegu ástan...
„Höfum lært af síðasta þingvetri“
📅 19.06.2026 👁️ 2
„Höfum lært af síðasta þingvetri“
Alþingi hefur lokið störfum þennan veturinn en þingfundi var slitið á fimmta tímanum í dag. Fundum hefur verið frestað til 8. september. Af 188 frumvö...
Driver dead and 33 passengers seriously injured in Bedford train collision
📅 19.06.2026 👁️ 2
Driver dead and 33 passengers seriously injured in Bedford train collision
A train driver has died and 89 people have been injured after two trains collided in the Bedford area as police declare a major incident.Eleven people...
Einn látinn eftir lestarslys á Englandi
📅 19.06.2026 👁️ 1
Einn látinn eftir lestarslys á Englandi
Einn er látinn og áttatíu og níu eru særðir, þar af ellefu alvarlega, eftir að tvær lestir skullu saman á Englandi á fimmta tímanum að íslenskum tíma ...
Lögreglan segir strangar öryggisreglur á Þingvöllum sjálfsagðar
📅 19.06.2026 👁️ 2
Lögreglan segir strangar öryggisreglur á Þingvöllum sjálfsagðar
Lokaundirbúningur fyrir tónleikahátíðina Bergmál, sem fer fram á Þingvöllum á morgun, er í fullum gangi. Um hundrað manns hafa komið að undirbúningi a...
Undrast „leiðin­lega“ Ís­lendinga - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 2
Undrast „leiðin­lega“ Ís­lendinga - Vísir
Umboðsmaðurinn Máni Pétursson, framkvæmdastjóri Paxal, leggur orð í belg með færslu á Facebook þar sem hann vill meina að umræðan sé ósanngjörn og í r...
Upplifðu mikla athygli og áreitni á hátindi frægðarinnar: „Við þurftum að vera með leyninúmer. Það var hringt allan sólarhringinn“
📅 19.06.2026 👁️ 2
Upplifðu mikla athygli og áreitni á hátindi frægðarinnar: „Við þurftum að vera með leyninúmer. Það var hringt allan sólarhringinn“
Greifarnir fagna um þessar mundir 40 ára afmæli hljómsveitarinnar og ætla meðal annars að rifja upp gömlu sveitaballastemninguna með tónleikaferðalagi...
Passengers describe how Bedford train crash unfolded
📅 19.06.2026 👁️ 2
Passengers describe how Bedford train crash unfolded
Passengers onboard two trains that collided near Bedford on Friday afternoon have told the BBC of the panic and injuries they witnessed in the afterma...
James Burrows látinn - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 2
James Burrows látinn - Vísir
Umboðsmaður hans, Rick Rosen, staðfestir andlátið við New York Times en dánarorsökin hefur ekki verið tekin fram. James „Jim“ Burrows hefur verið titl...
Skora á Bubba að taka sér pásu frá lax­veiði og mæta - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 1
Skora á Bubba að taka sér pásu frá lax­veiði og mæta - Vísir
Á Þingvöllum í dag var lokahönd lögð á undirbúning fyrir stórtónleika Kaleo og félaga undir yfirskriftinni Bergmál. Reiknað er með að túnið steinsnar ...
Skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn átta stúlkum á aldrinum 12-14 ára
📅 19.06.2026 👁️ 2
Skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn átta stúlkum á aldrinum 12-14 ára
Karlmaður hefur verið dæmdur í 16 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn átta stúlkum á aldrinum 12–14, en brotin áttu sér stað í geg...
Ofar gengur til liðs við Nova
📅 19.06.2026 👁️ 2
Ofar gengur til liðs við Nova
Í dag var gengið frá kaupum Nova Klúbbsins á öllu hlutafé Ofar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem fer hér á eftir í heild sinni.Ofar hefur um á...
Bedford train crash: What we we know so far as police confirm at least one dead
📅 19.06.2026 👁️ 2
Bedford train crash: What we we know so far as police confirm at least one dead
Two passenger trains have collided in the Bedford area, leaving a number of passengers and crew hurt and one person dead.Emergency crews are on the sc...
Tulsi Gabbard afhjúpar skjöl um Fauci og rannsóknir: laug að þinginu í vitnisburði árið 2024
📅 19.06.2026 👁️ 1
Tulsi Gabbard afhjúpar skjöl um Fauci og rannsóknir: laug að þinginu í vitnisburði árið 2024
Tulsi Gabbard afhjúpar skjöl um Fauci og rannsóknir: laug að þinginu í vitnisburði árið 2024 Fréttin19. júní 2026Covid bóluefni, COVID-19, ErlentLeave...
Segja átök hafa blossað upp á ný þrátt fyrir vopnahlé
📅 19.06.2026 👁️ 1
Segja átök hafa blossað upp á ný þrátt fyrir vopnahlé
Átök virðast hafa blossað upp aftur í Líbanon í dag þrátt fyrir vopnahlé Hezbollah-samtakanna og Ísraels. Líbanski ríkisfjölmiðillinn segir Ísraela ha...
„Ég hef verið kölluð þing­maður dauðans“ - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 2
„Ég hef verið kölluð þing­maður dauðans“ - Vísir
„Ég hef verið kölluð þrautseigjan hér á þinginu hvað þetta mál varðar,“ segir Bryndís í kvöldfréttum Sýnar en hún segist ánægð með þann stuðning sem f...
Könnun: Ætlar þú að taka þátt í eða vera viðstaddur/viðstödd hátíðahöld á 17. júní?
„Pinterest-hús“ Keaton komið aftur á markað fyrir milljónir
📅 19.06.2026 👁️ 2
„Pinterest-hús“ Keaton komið aftur á markað fyrir milljónir
Einstakt hönnunarhús leikkonunnar Diane Keaton er komið aftur á markað fyrir áhugasama, sem eiga 22,9 milljónir dala í handraðanum. Keaton lést 11. ok...
Manst þú eftir þjóðvegahátíðinni 1994?
📅 19.06.2026 👁️ 2
Manst þú eftir þjóðvegahátíðinni 1994?
Gert var ráð fyrir um fimmtíu þúsund gestum á Þingvelli í tilefni af fimmtíu ára afmæli lýðveldisins þann 17. júní 1994, en þeir urðu mun fleiri, eða ...
Komast enn ekki að við borðið vegna viðhorfa samfélagsins: „Dropinn holaði steininn“
📅 19.06.2026 👁️ 2
Komast enn ekki að við borðið vegna viðhorfa samfélagsins: „Dropinn holaði steininn“
„Samfélagið okkar fer á mis við mikilvægan mannauð,“segja Jana Birta Björnsdóttir, verkefnastýra Tabú - feminískrar fötlunarhreyfingu, og Jónína Rósa ...
Bedford train crash: What we we know so far as union warns of serious injuries
📅 19.06.2026 👁️ 1
Bedford train crash: What we we know so far as union warns of serious injuries
Two passenger trains have collided in the Bedford area, leaving a number of passengers and crew hurt.Emergency crews are on the scene after the crash ...
Segir Reykja­vík að verða að Mekka vændisiðnaðar - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 1
Segir Reykja­vík að verða að Mekka vændisiðnaðar - Vísir
Fréttastofa greindi frá því í dag að nokkrir hefðu verið handteknir í rassíu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku en þetta mál er eitt fjö...
Meloni segir Trump hafa búið til sögu um sig
📅 19.06.2026 👁️ 1
Meloni segir Trump hafa búið til sögu um sig
Ítalir brugðust ókvæða við í dag vegna ummæla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um Giorgiu Meloni forsætisráðherra landsins í ítölskum fjölmiðlum.Trump...
Video shows scene of Bedford train crash as passenger describes aftermath
📅 19.06.2026 👁️ 2
Video shows scene of Bedford train crash as passenger describes aftermath
Passenger Pete Knapp said the crash "felt like [he'd] been in a bomb explosion".
Ráð­herrar krefja Starmer um af­sögn - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 2
Ráð­herrar krefja Starmer um af­sögn - Vísir
Sætið undir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur hitnað ört síðasta sólarhring frá því að Andy Burnham, vinsæll borgarstjóri Stór-Mancheste...
44 mansalsmál á borð Bjarkarhlíðar á einu ári
📅 19.06.2026 👁️ 1
44 mansalsmál á borð Bjarkarhlíðar á einu ári
Fjörutíu og fjögur mansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar í fyrra eða nærri eitt á viku að meðaltali.Dómsmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra...
Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að há­gráta“ - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 2
Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að há­gráta“ - Vísir
Hólmsteinn kom sér fyrir í tunnu um borð í Hval 9 um tvöleytið í gær en um hálf fimm var skipinu stefnt á haf út. Hann segist ekki hafa trúað því að þ...
Þorgerður Katrín: „Það sem er verið að spila á er ótti og hræðsla“
📅 19.06.2026 👁️ 2
Þorgerður Katrín: „Það sem er verið að spila á er ótti og hræðsla“
„Það felst engin skuldbinding í því að segja já í ágúst.“ Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar í viðta...
Tulsi Gabbard birtir leyniskjöl: Segir Anthony Fauci hafa fjármagnað hættulegar tilraunir í Wuhan og logið að þinginu
📅 19.06.2026 👁️ 2
Tulsi Gabbard birtir leyniskjöl: Segir Anthony Fauci hafa fjármagnað hættulegar tilraunir í Wuhan og logið að þinginu
Tulsi Gabbard birti í dag eldfimt efni á samfélagsmiðlum þar sem hún segir nýlega aflétt leyniskjöl sýna fram á að Anthony Fauci hafi veitt milljónir ...
Karlar og konur nálgast kynlíf og tengingu á ólíkan hátt
📅 19.06.2026 👁️ 2
Karlar og konur nálgast kynlíf og tengingu á ólíkan hátt
Hér kemur nýtt myndband frá Aðalheiði Jensen sem fjallar um samskipti kynjanna, sambönd og lífið almennt. Í þessu myndbandi fjallar Aðalheiður um mism...
Israel and Hezbollah agree ceasefire, US says, as more Lebanon strikes reported
📅 19.06.2026 👁️ 2
Israel and Hezbollah agree ceasefire, US says, as more Lebanon strikes reported
Israel and Hezbollah have agreed a ceasefire, a US official says, following intense Israeli air strikes in southern Lebanon that the government said k...
Farþegagreining lykillinn að handtöku eggjaþjófa
📅 19.06.2026 👁️ 1
Farþegagreining lykillinn að handtöku eggjaþjófa
Lögreglan á Austurlandi komst á snoðir um eggjaþjófnað og smygltilraun með greiningu á farþegalista Norrænu. Par var handtekið í síðustu viku á Seyðis...
PM under pressure from Labour MPs and ministers to set timetable for exit
📅 19.06.2026 👁️ 1
PM under pressure from Labour MPs and ministers to set timetable for exit
Sir Keir Starmer is facing calls to set a timetable for his departure from Downing Street after Andy Burnham won a resounding victory in the Makerfiel...
Höfuð­vígi vændismansals, mót­mælandi sem brotnaði niður og Þing­vellir - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 1
Höfuð­vígi vændismansals, mót­mælandi sem brotnaði niður og Þing­vellir - Vísir
Þá hittum við mótmælandann Hólmstein Harðarson sem sigldi með hvalveiðiskipi upp í Hvalfjörð í gær. Hann segist hafa brotnað niður þegar hann áttaði s...
SPAR opnar í Hófgerði í Kópavogi
📅 19.06.2026 👁️ 2
SPAR opnar í Hófgerði í Kópavogi
Þriðja verslun SPAR verður opnuð í Hófgerði í Kópavogi á morgun, laugardag kl. 12, en Samkaup hafa rekið Krambúð í húsnæðinu um árabil. Tvær SPAR vers...
Ungt fólk á Íslandi er minna jafnréttissinnað en kynslóðin á undan
📅 19.06.2026 👁️ 1
Ungt fólk á Íslandi er minna jafnréttissinnað en kynslóðin á undan
Ungt fólk á Íslandi er minna jafnréttissinnað en kynslóðin á undan Við­horfs­breyt­ing til jafn­rétt­is hef­ur orð­ið sam­kvæmt leið­toga­vísi­tölu He...
Þingfundir samtals 844 klukkustundir í vetur
📅 19.06.2026 👁️ 2
Þingfundir samtals 844 klukkustundir í vetur
Þingfundir nýafstaðins þingvetrar stóðu samtals yfir í 844 klukkustundir og 21 mínútu.Þeir voru alls 131 talsins og sá lengsti stóð í 13 og hálfan tím...
Björgunar­sveitir sóttu göngumann við Háafoss - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 1
Björgunar­sveitir sóttu göngumann við Háafoss - Vísir
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir í samtali við Vísi að göngumaðurinn, sem hafi verið í hóp, virðist hafa dottið og talið ha...
Björgunarsveitir kallaðar út að slysi við Háafoss
📅 19.06.2026 👁️ 2
Björgunarsveitir kallaðar út að slysi við Háafoss
Björgunarsveitir í Árnessýslu brugðust við útkalli við Háafoss í Þjórsárdal í dag. Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjarga...
Nova Klúbburinn eignast Ofar
📅 19.06.2026 👁️ 2
Nova Klúbburinn eignast Ofar
Nova Klúbburinn, sem rekur fjarskiptafélagið Nova, hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé Ofar. Greint var frá því í febrúar að félögin hefðu undirrit...