Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að meðaltali 55 prósent meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins.
Fjallað er um þetta á vef Samkeppniseftirlitsins en þar kemur jafnframt fram að aðeins í Sviss sé matvara dýrari, eða 58 prósent yfir meðaltali ESB-landa. Í Noregi er vöruverð 32 prósent yfir meðaltali, en verð í Svíþjóð og Finnlandi er einungis 6 prósent yfir meðaltalinu.
46% hækkun frá 2020
„Þá sýnir greiningin að frá árinu 2020 hafa mestar hækkanir á dagvörumarkaði orðið hér á landi, samanborið við nágrannalönd. Þannig hefur matvöruverð hér á landi hækkað um 46 prósent, samanborið við 37 prósent verðhækkun í ESB-löndunum. Sviss er nokkur undantekning í samanburðinum, þar sem matvöruverð hefur aðeins hækkað um 3 prósent á sama tímabili, en 32 prósent í Noregi, 22 prósent í Finnlandi og 25 prósent á Írlandi.”
Í frétt Samkeppniseftirlitsins kemur fram að af einstökum flokkum matvöru séu hérlendar mjólkurvörur dýrastar í Evrópu, eða rúmlega 90 prósent yfir meðaltali ESB-landa. Næstar koma kjötvörur, en þær eru um 75 prósent yfir meðaltalinu.
„Verð á kjöti hér á landi hefur hækkað mest af öllum vöruflokkum frá árinu 2020, eða um 67 prósent. Í Noregi hefur verð á mjólkurvörum hækkað tæplega helmingi minna á sama tímabili og verð á kjöti um þriðjungi minna.“
Heimilt að hafa með sér samráð
Bent er á það að hátt verð og miklar hækkanir á kjöti og mjólk í samanburði við nágrannalönd skýrist meðal annars af því að hér á landi sé afurðastöðvum heimilað að sameinast án þess að samkeppnisyfirvöld geti stöðvað samkeppnishamlandi samruna.
„Jafnframt er afurðastöðvum heimilað að hafa með sér samráð, án tillits til þess hvort þær séu í eigu eða undir stjórn bænda. Alls staðar annars staðar í Evrópu er samkeppnisyfirvöldum ætlað að vernda hagsmuni neytenda og bænda að þessu leyti.“
Á vef Samkeppniseftirlitsins segir að í umræðuskjali eftirlitsins sé gerð nánari grein fyrir vöruverði á Íslandi og samanburði við önnur Evrópulönd. Umræðuskjalið er liður í víðtækari athugun á dagvörumarkaði. Nú stendur yfir gagnaöflun sem miðar m.a. að því að kanna álagningu dagvöruverslana og birgja og koma auga á samkeppnishindranir sem áhrif hafa á dagvöruverð hér á landi.“
„Stór hluti heildarútgjalda íslenskra heimila fer í matarinnkaup og er því hið háa matvöruverð hér á landi mikið áhyggjuefni. Kallar Samkeppniseftirlitið því eftir sjónarmiðum um efni umræðuskjalsins og ábendingum um samkeppnishindranir. Slíkar mögulegar samkeppnishindranir geta t.d. varðað hverskonar óeðlilegar hindranir við innflutning, framleiðslu, heildsölu og smásölu á matvöru. Vakin er athygli á að frestur til að koma sjónarmiðum á framfæri er gefinn til 30. júní næstkomandi.”
Lesa má umræðuskjalið hér.